Sigfús Daðason - Vængjasláttur
Akureyri
mjög skreytt
reynitrjám.

Sá sem gengi um bæinn
á septemberkvöldi:
dimmur skuggi innfjarðarins
fylgdi honum á aðra hönd hvar sem hann færi,
lifandi, kvikur!
Sálarspegill!

Heilagur lundur
rís í hæðir.
Og gangi maður í lundinn
er hann þar einn með sjálfum sér.

Það gustar um limið
og fuglarnir í björtum trjákrónunum
fælast skóhljóð einmanans
og hviðra með vængjaslætti
yfir höfði hans og úti í myrkrinu.

Og upp fyrir honum rennur þá: hvílík
sú dýrð sem einmananum hlotnast.



Lonicera maximowiczii v sachalinensis
Ættkvísl   Lonicera
     
Nafn   maximowiczii
     
Höfundur   (Rupr.) Maxim.
     
Ssp./var   v sachalinensis
     
Höfundur undirteg.   F. Schmidt.
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Purpuratoppur
     
Ætt   Geitblaðsætt (Caprifoliaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Sumsrgrænn runni.
     
Kjörlendi   Sól-hálfskuggi.
     
Blómlitur   Dökkpurpura.
     
Blómgunartími   Júlí.
     
Hæð   - 3 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Purpuratoppur
Vaxtarlag   Uppréttur, lauffellandi runni, allt að 3 m hár. Ungir sprotar purpuramengaðir, hárlausir eða dálítið þornhærðir.
     
Lýsing   Lauf breið, oddur ekki eins hvassyddur, dökkgræn og hárlaus ofan, áberandi blágræn neðan, Blómin dökkpurpura, allt að 18 mm, bikarblöð langydd. Berin dökkrauð, alveg samvaxin.
     
Heimkynni   Sakalín, Japan.
     
Jarðvegur   Meðalfrjór, meðalrakur, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   4
     
Heimildir   1
     
Fjölgun   Græðlingar, sáning, sveiggræðsla.
     
Notkun/nytjar   í blönduð beð, limgerði, sem stakstæðir runnar.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til ein planta, sem sáð var til 1989 og gróðursett í beð 1980, aðþrengd.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Purpuratoppur
Purpuratoppur
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is