Þuríður Guðmundsdóttir - Rætur
Ég geng um skrúðgarða borgar
og blómin horfa á mig
litríkum framandi augum
og ilmur þeirra er alltaf nýr

Í fjarska situr fölblá gleymmérei
á fötum lítils barns

Því blágresi, holtasóley og steinbrjótur
voru blóm bernsku minnar

Og rætur þeirra
verða alltaf mínar

Helianthemum nummularium ssp. grandiflorum
Ættkvísl   Helianthemum
     
Nafn   nummularium
     
Höfundur   (L.) Mill.
     
Ssp./var   ssp. grandiflorum
     
Höfundur undirteg.   (Scop.) Hayek.
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Sólauga
     
Ætt   Sólrósaætt (Cistaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær hálfrunni.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Appelsínugulur-gulur.
     
Blómgunartími   Júní-september.
     
Hæð   5-50 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Sólauga
Vaxtarlag   Greinar jarðlægar eða uppsveigðar.
     
Lýsing   Laufin græn, ögn dúnhærð neðan. Bikarblöð 7-10 sm, hárlaus á milli rifjanna. Krónublöð 10-18 mm, appelsínugul-gul.
     
Heimkynni   Mið og SV Evrópa.
     
Jarðvegur   Léttur, framræstur, sendinn.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   5
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Sáning (fræ spírar í birtu), skipting, sumargræðlingar.
     
Notkun/nytjar   Í steinhæðir, í kanta, í hleðslur.
     
Reynsla   Meðalharðgerð planta.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Sólauga
Sólauga
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is