Jón Thoroddsen - Barmahlíð

Hlíðin mín fríða
hjalla meður græna
og blágresið blíða
og berjalautu væna,
á þér ástaraugu
ungur réð ég festa,
blómmóðir bezta!

Sá ég sól roða
síð um þína hjalla
og birtu boða
brúnum snemma fjalla.
Skuggi skauzt úr lautu,
skreið und gráa steina,
leitandi leyna.

Blómmóðir bezta,
beztu jarðargæða
gaf þér fjöld flesta
faðir mildur hæða.
Hver mun svo, er sér þig,
sálar þjáður dofa,
að gleymi guð lofa?

Hlíð, þér um haga
hlýr æ blási andi,
döggvi vordaga
dögg þig sífrjóvgandi!
Um þig aldrei næði,
af þér svo að kali,
vetur vindsvali!


Betula pubescens 'Embla'
Ættkvísl   Betula
     
Nafn   pubescens
     
Höfundur   Ehrh.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'Embla'
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Ilmbjörk, birki
     
Ætt   Bjarkarætt (Betulaceae)
     
Samheiti  
     
Lífsform   Tré
     
Kjörlendi   Sól
     
Blómlitur   Grænleitur
     
Blómgunartími   Vor
     
Hæð   10-20 m
     
Vaxtarhraði   Hraðvaxta.
     
 
Ilmbjörk, birki
Vaxtarlag   Sjá aðaltegundina.
     
Lýsing   Sjá aðaltegundina.
     
Heimkynni   Kvæmi.
     
Jarðvegur   Léttur, sendinn, meðalfrjór, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka  
     
Heimildir   1,
     
Fjölgun   Sáning, sumargræðlingar.
     
Notkun/nytjar   Stakstæð tré, í raðir.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til ein planta undir frá Björgvin 2015.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Ilmbjörk, birki
Ilmbjörk, birki
Ilmbjörk, birki
Ilmbjörk, birki
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is