Sigfús Daðason - Vængjasláttur
Akureyri
mjög skreytt
reynitrjám.

Sá sem gengi um bæinn
á septemberkvöldi:
dimmur skuggi innfjarðarins
fylgdi honum á aðra hönd hvar sem hann færi,
lifandi, kvikur!
Sálarspegill!

Heilagur lundur
rís í hæðir.
Og gangi maður í lundinn
er hann þar einn með sjálfum sér.

Það gustar um limið
og fuglarnir í björtum trjákrónunum
fælast skóhljóð einmanans
og hviðra með vængjaslætti
yfir höfði hans og úti í myrkrinu.

Og upp fyrir honum rennur þá: hvílík
sú dýrð sem einmananum hlotnast.



Cyananthus incanus
Ættkvísl   Cyananthus
     
Nafn   incanus
     
Höfundur   Hook.f. & Thomson
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn  
     
Ætt   Bláklukkuætt (Campanulaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Himinblár.
     
Blómgunartími   Júlí-ágúst.
     
Hæð   0 10 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Lágvaxinn og útbreiddur fjölæringur, allt að 10 sm hár. Stilkar stuttir, jarðstöngull sver.
     
Lýsing   Lauf allt að 1 sm, oddbaugótt, heilrend eða með mjög grunna flipa, með hvít löng hár, Blómin stök, endastæð. Bikar með fliða til hálfs eða minna. Krónupípan trektlaga, flipar allt að 1,5 sm aflangir-odddregnir, útstæðir, himinbláir
     
Heimkynni   Sikkím.
     
Jarðvegur   Meðalrakur, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   Z7
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Sáning.
     
Notkun/nytjar   Í steinhæðir, í beðkanta.
     
Reynsla   Er ekki í Lystigarðinum 2013. Lítt reynd enn sem komið er.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is