Sigfús Daðason - Vængjasláttur
Akureyri
mjög skreytt
reynitrjám.

Sá sem gengi um bæinn
á septemberkvöldi:
dimmur skuggi innfjarðarins
fylgdi honum á aðra hönd hvar sem hann færi,
lifandi, kvikur!
Sálarspegill!

Heilagur lundur
rís í hæðir.
Og gangi maður í lundinn
er hann þar einn með sjálfum sér.

Það gustar um limið
og fuglarnir í björtum trjákrónunum
fælast skóhljóð einmanans
og hviðra með vængjaslætti
yfir höfði hans og úti í myrkrinu.

Og upp fyrir honum rennur þá: hvílík
sú dýrð sem einmananum hlotnast.



Hordeum vulgare 'Lómur'
Ættkvísl   Hordeum
     
Nafn   vulgare
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'Lómur'
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Sexraðabygg
     
Ætt   Grasaætt (Poaceae).
     
Samheiti   H. polystichon Haller fil.
     
Lífsform   Einært gras.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Grænleitur.
     
Blómgunartími   Ágúst.
     
Hæð   - 130 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Sexraðabygg
Vaxtarlag   Stráin allt að 130 sm há, öxin 4-12 sm, aflöng, ferhyrnd eða sexhyrnd í þverskurð, með 4-6 raðir af frjóum smáöxum, allar blómagnir með stinna týtu allt að 18 sm langa.
     
Lýsing   Lauf 5-24(-30) sm x 4-15 mm, hárlaus til snörp.
     
Heimkynni   Yrki.
     
Jarðvegur   Djúpur, frjór, rakaheldinn.
     
Sjúkdómar  
     
Harka  
     
Heimildir   2, ttps://www.researchgate.net/publication/266877933_Islenskt_bygg_til_matvaelaframleidslu
     
Fjölgun   Sáning.
     
Notkun/nytjar   Brauð er baka úr korninu og þykir gott.
     
Reynsla   Ræktuð planta.
     
Yrki og undirteg.   'Lómur' er íslenskt bygg.
     
Útbreiðsla   Myndirnar eru teknar í Grasagarði Reykjavíkur.
     
Sexraðabygg
Sexraðabygg
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is