Halldór Laxness

"Blóm eru ódauðleg... þú klippir þau í haust og þau vaxa aftur í vor, - einhversstaðar."

Rosa 'Benjamin Britten'
Ættkvísl   Rosa
     
Nafn  
     
Höfundur  
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'Benjamin Britten'
     
Höf.   (Austin 2000) Bretland.
     
Íslenskt nafn  
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae).
     
Samheiti   Rosa 'Auscot'.
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól og skjól.
     
Blómlitur   Lax-appelsínurauður /aprikósulitur.
     
Blómgunartími   Ágúst-september.
     
Hæð   Allt að 120 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Ensk runnarós, miðlungsstór, uppréttur og kröftugur 120 sm hár eða hærri og 100 m breiður runni, með glansandi, græn laufblöð, síblómstrandi.
     
Lýsing   Blómin fyllt-þéttfyllt, lax-appelsínurauð /aprikósulit, dekkri í miðjunni, krónublöð 20-40 (jafnvel 50 eða fleiri) og hafa sterkan ávaxtailm sem minnir á vín og perur. Lauf djúpgrænt.
     
Heimkynni   Yrki.
     
Jarðvegur   Frjór, vel framræstur, rakur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   H4
     
Heimildir   http://www.chamberleeroses.com, http://www.hesleberg.no, http://www.welt-der-rosen,de/duftrosen/_duftrosen.htm, davesgarden.com/guides/pf/go/52120/#b
     
Fjölgun   Sumar-, síðsumar-, vetrargræðlingar, ágræðsla, brumágræðsla.
     
Notkun/nytjar   Þarf mikla sól eins og allar ensku rósirnar þ.e. full sól 6-8 klst á dag, áburður að vorinu rétt áður en hún byrjar að vaxa. Þarf góðan jarðveg. Þegar hún er gróðursett þarf að halda moldinni rakri þar til hún hefur örugglega fest rætur, eftir það þarf hún meðalvökvun á vaxtartímanum. Tvær-þrjár plöntur á m². Er sjúkdómaþolin og fremur harðgerð. Rósin er höfð ein sér eða í beði eða í grúppum. Það er hægt að rækta þessa rós sem runna ef hún er klippt, annars sem klifurrós sem verður allt að 240 sm. Nefnd þessu nafni til minningar um enska tónskáldið Benjamin Britten.
     
Reynsla   Rosa ‘Benjamin Britten’ var keypt í Lystigarðinn 2006, vex vel og blómstraði mikið 2008, fáein blóm komu 2009.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is