Jón Helgason - Úr ljóðinu Áfangar
Séð hef ég skrautleg suðræn blóm
sólvermd í hlýjum garði;
áburð og ljós og aðra virkt
enginn til þeirra sparði;
mér var þó löngum meir í hug
melgrasskúfurinn harði,
runninn upp þar sem Kaldakvísl
kemur úr Vonarskarði.
Ribes laxiflorum 'Rökkva'
Ættkvísl   Ribes
     
Nafn   laxiflorum
     
Höfundur   Pursh.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'Rökkva'
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Hélurifs
     
Ætt   Garðaberjaætt (Grossulariaceae)
     
Samheiti  
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól, hálfskuggi.
     
Blómlitur   Rauður.
     
Blómgunartími   Maí-júní.
     
Hæð   Allt að 0,5 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Hélurifs
Vaxtarlag   Jarðlægur runni.
     
Lýsing   Mjög blaðfallegt kvæmi, slétt og litsterk blöð, skærir haustlitir. Þekur fljótt og vel, myndar ekki ber. &
     
Heimkynni   Klón.
     
Jarðvegur   Meðalfrjór, meðalrakur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   5
     
Heimildir   1, http://yndisgrodur.lbhi.is
     
Fjölgun   Síðsumargræðlingar.
     
Notkun/nytjar   Sem þekjuplanta.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum eru til tvær plöntur sem voru fengnar úr Kjarna 1999. Þær kala ekkert, eru mjög gróskulegar (2011).
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Hélurifs
Hélurifs
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is