Jón Thoroddsen - Barmahlíð

Hlíðin mín fríða
hjalla meður græna
og blágresið blíða
og berjalautu væna,
á þér ástaraugu
ungur réð ég festa,
blómmóðir bezta!

Sá ég sól roða
síð um þína hjalla
og birtu boða
brúnum snemma fjalla.
Skuggi skauzt úr lautu,
skreið und gráa steina,
leitandi leyna.

Blómmóðir bezta,
beztu jarðargæða
gaf þér fjöld flesta
faðir mildur hæða.
Hver mun svo, er sér þig,
sálar þjáður dofa,
að gleymi guð lofa?

Hlíð, þér um haga
hlýr æ blási andi,
döggvi vordaga
dögg þig sífrjóvgandi!
Um þig aldrei næði,
af þér svo að kali,
vetur vindsvali!


Lychnis x arkwrightii 'Vesuvius'
Ættkvísl   Lychnis
     
Nafn   x arkwrightii
     
Höfundur   hort.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'Vesuvius'
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Surtarhetta
     
Ætt   Hjartagrasaætt (Caryophyllaceae).
     
Samheiti   Lychnis chalcedonica x Lychnis x haageana
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól til hálfskuggi.
     
Blómlitur   Djúp appelsínugulur.
     
Blómgunartími   Júlí-ágúst.
     
Hæð   40-55 sm
     
Vaxtarhraði   Vex hratt.
     
 
Surtarhetta
Vaxtarlag   Skammlíf, fölær planta með koparlit-purpura lauf, myndar brúsk.
     
Lýsing   Laufin ögn hærð og lensulaga. Blómin í litlum þyrpingum af skær appelsínugulum blómum, krónublöðin 5, skörðótt, krónublöðin mjó.
     
Heimkynni   Garðablendingur.
     
Jarðvegur   Rakur, frjór, vel framræstur, meðalvökvun.
     
Sjúkdómar  
     
Harka  
     
Heimildir   http://www.learn2grow.com/plants/lychnis-x-arkwrightii-vesuvius/
     
Fjölgun   Sáning.
     
Notkun/nytjar   Í beðkanta.
     
Reynsla   Nokkur ár í B4-I20 90374
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Surtarhetta
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is