Jón Thoroddsen - Barmahlíð

Hlíðin mín fríða
hjalla meður græna
og blágresið blíða
og berjalautu væna,
á þér ástaraugu
ungur réð ég festa,
blómmóðir bezta!

Sá ég sól roða
síð um þína hjalla
og birtu boða
brúnum snemma fjalla.
Skuggi skauzt úr lautu,
skreið und gráa steina,
leitandi leyna.

Blómmóðir bezta,
beztu jarðargæða
gaf þér fjöld flesta
faðir mildur hæða.
Hver mun svo, er sér þig,
sálar þjáður dofa,
að gleymi guð lofa?

Hlíð, þér um haga
hlýr æ blási andi,
döggvi vordaga
dögg þig sífrjóvgandi!
Um þig aldrei næði,
af þér svo að kali,
vetur vindsvali!


Cirsium rivulare
Ættkvísl   Cirsium
     
Nafn   rivulare
     
Höfundur   (Jacq.) All.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Giljaþistill
     
Ætt   Asteraceae
     
Samheiti  
     
Lífsform   fjölær
     
Kjörlendi   sól
     
Blómlitur   hárauður
     
Blómgunartími   júlí-ágúst
     
Hæð   1.2-1.5m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Giljaþistill
Vaxtarlag   blöð mjög löng, flest í hvirfingu eða neðan til á stönglum
     
Lýsing   blómkörfur meðalstórar, fáar saman á lítið eitt greinóttum stönglum, dökkar körfureifar, pípukrýnd blóm blöðin löng, reglulega og fallega fjaðurskipt
     
Heimkynni   M, A og SA Evrópa
     
Jarðvegur   djúpur, frjór, rakur, lífrænn moldarjarðvegur
     
Sjúkdómar  
     
Harka   5
     
Heimildir   1
     
Fjölgun   skipting, sáning
     
Notkun/nytjar   Þyrpingar, beð
     
Reynsla   Harðger, ljómandi falleg tegund, Þarf lítils háttar stuðning, þrífst vel bæði norðan lands og sunnan
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Giljaþistill
Giljaþistill
Giljaþistill
Giljaþistill
Giljaþistill
Giljaþistill
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is