Halldór Laxness

"Blóm eru ódauðleg... þú klippir þau í haust og þau vaxa aftur í vor, - einhversstaðar."

Potentilla dombeyi
Ættkvísl   Potentilla
     
Nafn   dombeyi
     
Höfundur   Nestl.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Andesmura
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae).
     
Samheiti   Potentilla andicola Benth.
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Skærgulur til fölgulur.
     
Blómgunartími   Júlí-ágúst.
     
Hæð   15 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Andesmura
Vaxtarlag   Útbreiddur, þýfður, hvít-silkihærður eða kirtilhærður fjölæringur með rauðleitar greinar.
     
Lýsing   Laufin stakstæð, samsett, fá, allt að 2 sm löng. Grunnlauf eru fjaðurskipt, smálauf 3-5, egglaga, sagtennt. Blómin stök, allt að 10 mm í þvermál, krónublöðin 5, hjartalaga, með fjölda fræfla, tvöfalt lengri en bikarblöðin. Krónblöð skærgul til fölgul. Aldinin eru umlukin stækkuðum bikar, með samaldini gerðu úr smáum, þurrum, smáhnotum sem, eru hver og ein, um 1 mm löng.
     
Heimkynni   Ekvador, Perú, Kólumbía.
     
Jarðvegur   Magur til meðalfrjór, hæfilega rakur, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   8
     
Heimildir   = 1, http://www.mobot.org
     
Fjölgun   Sáning, skipting.
     
Notkun/nytjar   Í beð með fjölærum jurtum, í steinhæðir, í kanta.
     
Reynsla   Ein planta sem sáð var 1988 er til, þrífst vel.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Andesmura
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is