Halldór Kiljan Laxness , Bráðum kemur betri tíð.
Bráðum kemur betri tíð með blóm í haga,
sæta langa sumardaga.

Lilium 'Odeon'
Ættkvísl   Lilium
     
Nafn  
     
Höfundur  
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'Odeon'
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Skrautlilja*
     
Ætt   Liljuætt (Liliaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölæringur og laukplanta. Trompetliljublendingur (Trumpet lily Aurelian hybrid).
     
Kjörlendi   Vaxtarstaður þarf að vera sólríkur í skjóli fyrir næðingum.
     
Blómlitur   Hreinhvítur.
     
Blómgunartími   Ágúst-september.
     
Hæð   100 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Skrautlilja*
Vaxtarlag   Uppréttir, laufóttir stönglar, 1000 sm háir.
     
Lýsing   Blómin trektlaga, hreinhvít.
     
Heimkynni   Yrki / Cultivar.
     
Jarðvegur   Frjór, ríkur af lífrænum efnum og vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka  
     
Heimildir   Upplýsingar af umbúðunum, http://www.answers.yahoo.com, http://www.tonkinsbulbs.com.au, http://www.plantfinde.sunset.com, http://www.americanmeadows.com
     
Fjölgun  
     
Notkun/nytjar   Vaxtarstaður þarf að vera sólríkur í skjóli fyrir næðingum, en ekki fast upp við suðurvegg þar verður of þurrt. Vökvun í meðallagi, þarf reglulega vökvun en ekki of mikla. Gróðursetjið laukana 15 sm djúpt með 20 sm millibili í blönduð beð eða beðkanta, einnig í ker t. d. á svalir. Mælt er með að setja lauf eða annað lífrænt yfir moldina til að halda betur rakanum í moldinni. Fjarlægið dauð blóm en látið stönglana standa áfram. Laukarnir eru látnir vera á sínum stað og blómstra ár eftir ár.
     
Reynsla   Laukur var keyptur og plantað í Lystigarðinn 1992, rétt tórði 2003, dó 2004.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla   AÐRAR UPPLÝSINGAR: Trompetliljublendingar (stundum nefndir Árelíublendingar (‘Aurelian Hybrids’) eða önnur nöfn eru notuð), eru stórar, hávaxnar trompetliljur eru komnar af kóngaliljunni (Lilium regale), hvítri, villtri lilju frá Kina, þ. e. þær eru upprunnar úr víxlfrjóvgun L. regale, L. sulphureum eða L. sargentiae × L. henryi og L. aurelianse nefna sumar heimildir (en hvorki L. auratum né L. speciosum). Blómin eru trektlaga eða skállaga, vita út á við eða dálítið niður á við og ilma oftast mikið, oft sérstaklega mikið á nóttunni. Allar trompetliljurnar eru dásamlegar til afskurðar. Þær verða hávaxnar og oft þarf að binda við þær, þar sem fullvaxinn stöngullinn getur borið meira en 15 stór blóm. Blómlitir eru hvítir og rjómalit yfir í gult og bleikt, margar með græna, brúna eða purpuralita slikju á ytri borði. Plönturnar eru oftast 90-180 sm há, hver stöngull ber 6-15 blóm.
     
Skrautlilja*
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is