Sigfús Daðason - Vængjasláttur
Akureyri
mjög skreytt
reynitrjám.

Sá sem gengi um bæinn
á septemberkvöldi:
dimmur skuggi innfjarðarins
fylgdi honum á aðra hönd hvar sem hann færi,
lifandi, kvikur!
Sálarspegill!

Heilagur lundur
rís í hæðir.
Og gangi maður í lundinn
er hann þar einn með sjálfum sér.

Það gustar um limið
og fuglarnir í björtum trjákrónunum
fælast skóhljóð einmanans
og hviðra með vængjaslætti
yfir höfði hans og úti í myrkrinu.

Og upp fyrir honum rennur þá: hvílík
sú dýrð sem einmananum hlotnast.



Clematis alpina 'Pamela Jackman'
Ættkvísl   Clematis
     
Nafn   alpina
     
Höfundur   (L.) Mill.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'Pamela Jackman'
     
Höf.   (Hackman 1960)
     
Íslenskt nafn   Alpabergsóley
     
Ætt   Sóleyjarætt (Ranunculaceae)
     
Samheiti  
     
Lífsform   Klifurrunni (vafrunni)
     
Kjörlendi   Sól og skjól
     
Blómlitur   Djúpblár
     
Blómgunartími   Snemmsumars
     
Hæð   -2,5 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Kröftugur klifurrunni (vafrunni).
     
Lýsing   Blómin stór, djúpblá, gervifræflar rjómalitir-hvítir. Þolir að vaxa í hálfskugga.
     
Heimkynni   Yrki.
     
Jarðvegur   Léttur, frjór, rakur, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   5
     
Heimildir   = 1,7
     
Fjölgun   Sumargræðlingar.
     
Notkun/nytjar   Á grindur, veggi, girðingar o. fl.
     
Reynsla   Ekki til í Lystigarðinum.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is