Málsháttur
Engin er rós án þyrna.
Rosa 'Eglantyne'
Ættkvísl   Rosa
     
Nafn  
     
Höfundur  
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'Eglantyne'
     
Höf.   (David Austin 1994) England.
     
Íslenskt nafn  
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae).
     
Samheiti   R. Eglantyne-Jebb, Ausmak .
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Ljósbleikur.
     
Blómgunartími   Ágúst-september.
     
Hæð   - 90-120(-150) sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Þetta er ensk runnarós og 20. aldar rós. Runninn verður stór og kröftugur, 150 sm hár og 120 sm breiður.
     
Lýsing   Foreldrar óþekktir. Myndar fjölda stórra, ljósbleikra blóma þegar runninn byrjar að blómstra, en blómstrar slitrótt eftir það, er lotublómstrandi. Blómin ilma mikið og vel. Blómin endast ekki lengi í hlýju loftslagi. ;
     
Heimkynni   Yrki.
     
Jarðvegur   Frjór, hæfilega rakur, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka  
     
Heimildir   http://www.hesleberg.no, http://www.rose-roses.com/rosepages, http://www.welt-der-rosen,de/duftrosen/_duftrosen.htm, davesgarden.com/pf/go/52150/#b
     
Fjölgun   Sumar-, síðsumar- eða vetrargræðlingar, ágræðsla, brumágræðsla.
     
Notkun/nytjar   Hæfilegt að hafa 3 plöntur á m². Sólríkur vaxtarstaður, þolir ekki skugga. Þarf góðan og næringarríkan jarðveg. Notuð í beð, nokkrar saman í þyrpingu, stök, í limgerði og til afskurðar.
     
Reynsla   Rosa 'Eglantyne' var keypt í Lystigarðinn 2006, þrífst vel og blómstrar mikið 2008 og 2009.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is