Vorið góða, grænt og hlýtt (Heinrich Heine, þýðing)
Vorið góða, grænt og hlýtt,
græðir fjör um dalinn,
allt er nú sem orðið nýtt,
ærnar, kýr og smalinn.

Kveður í runni, kvakar í mó
kvikur þrastasöngur;
eins mig fýsir alltaf þó:
aftur að fara í göngur.
Rosa 'Frühlingsduft'
Ættkvísl   Rosa
     
Nafn  
     
Höfundur  
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'Frühlingsduft'
     
Höf.   (W. Kordes 1949) Þýskaland.
     
Íslenskt nafn  
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Ljós sítrónugulur / ljósgulur / rjómagulur.
     
Blómgunartími   Ágúst-september.
     
Hæð   - 200 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Glæsileg og afar blómviljug runnarós, lotublómstrandi, með sérdeilis fögur blóm, kröftug í vextinum, oft 200 sm há, stundum hærri, 150 sm breið.
     
Lýsing   Foreldrar: Rosa ‘Johanna Hill’ X Rosa spinosissima altaica. Þessi runnarós er blendingur af þyrnirós (Rosa spinosissima). Laufið smágert, frískt og gljáandi. Runninn er með langar, bognar greinar með stórum þéttfylltum blómum, sem eru flöt þegar þau eru sprungin út. Liturinn er ljós sítrónugulur/ljósgul/rjómagul með ljósbleikum eða aprikósulitum blæ. Form blómanna getur minnt á blómformið hjá terósum. Blómin ilma mikið og vel. ;
     
Heimkynni   Yrki.
     
Jarðvegur   Meðalfrjór, vel framræstur og hæfilega rakur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka  
     
Heimildir   Nicolaisen, A. 1975: Rosernas Bog - København, Petersen, V, 1981: Gamle roser i nye haver. Utgivet av de danske haveselskaber København 1981, http://www.hesleberg.no, http://www.mobackes.se/Produktr/rosnyheter.htm, http://www.welt-der-rosen,de/duftrosen/_duftrosen.htm, davesgarden.com/guides/pf/go/70596/#b
     
Fjölgun   Sumar-, síðsumar- eða vetrargræðlingar, ágræðsla, brumágræðsla.
     
Notkun/nytjar   Blómstrar frá júníbyrjun (í Svíþjóð) til júlíbyrjun og jafn vel fram á haust þar. Nýtur sín sérlega vel sem stakur runni eða fáeinar saman í þyrpingu og sem óklippt limgerði. Sólríkur vaxtarstaður, þolir ekki skugga, hæfilegt að hafa eina plöntu á m². Nægjusöm varðandi jarðveg. Talin vera best af Frühlings-yrkjunum. Yrkið 'Frühlingsduft' á sömu foreldra og ‘Frühlingsanfang’ (Kordes 1950) en minnir meira á yrkið´Joanna Hill’ með sín fylltu blóm. Framleiðandinn er sömuleiðis Wilhelm Kordes.
     
Reynsla   Rosa ‘Frühlingsduft' var keypt í Lystigarðinn 2000, fór illa að hluta 2004, ekkert kal, vex oftast vel en blómstrar ekki enda komin í skugga.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is