Úr ljóðinu Barmahlíð eftir Jón Thoroddsen
Hlíðin mín fríða
hjalla meður græna
og blágresið blíða
og berjalautu væna,
á þér ástaraugu
ungur réð ég festa,
blómmóðir bezta!
Rosa 'Zigeunerknabe’
Ættkvísl   Rosa
     
Nafn  
     
Höfundur  
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'Zigeunerknabe’
     
Höf.   (Lambert 1909) Þýskaland.
     
Íslenskt nafn  
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae).
     
Samheiti   Rosa ‘Gipsy Boy’.
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól - léttur skuggi.
     
Blómlitur   Djúp-dökk purpurarauðar-hárauðar.
     
Blómgunartími   Ágúst-september.
     
Hæð   Allt að 300 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Kynbótamaður var Geschwind, en Lambert kom henni á framfæri 1909. Þetta er gömul búrbónarós, mjög kröftug með langar, bogsveigðar greinar, allt að 300 sm há og 150 sm breiður, mikið þyrnótt, blómviljug.
     
Lýsing   Blómin eru djúp-dökk purpurarauðar-hárauðar, fyllt eða hálffyllt, með lítinn gulan blett í miðjunni og með daufan ilm. Krónublöðin 26-40 talsins, sveigð aftur á bak en blómin eru annars flöt. Nýpurnar eru fallegar, appelsínugular, mjóar. Mjög harðgerð og sterkleg, kröftug og falleg í vextinum. Eftirsóknarverð planta, með fallega klasa af blómum, ekki lotublómstrandi.
     
Heimkynni   Yrki.
     
Jarðvegur   Frjór, lífefnaríkur, vel framræstur, meðalrakur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka  
     
Heimildir   Nicolaisen, A 1975: Rosernas Bog - København, Roy, Hay & Patrick Synge 1969: The Dictionary of Garden Plants in Colour with House and Greenhouse Plants. - George Rainbird LTD 1969 (Svensk översättninga och bearbetning Sven Nilson 1974. Örebro 1974), http://www.hesleberg.no, http://www.welt-der-rosen,de/duftrosen/_duftrosen.htm, www.helpmefind.com/rose/pl.php?n=6657
     
Fjölgun   Suma-, síðsumar- eða vetrargræðlingar, ágræðsla, brumágræðsla.
     
Notkun/nytjar   Sólríkur vaxtarstaður. Þolir ekki skugga. Blómin koma á gamlan við. Hæfilegt að hafa eina plöntu á m². Notuð í beð, stök eða nokkrar saman.
     
Reynsla   Rosa ‘Zigeunerknabe’ var keypt í Lystigarðinn 2006 og gróðursett í beð sama ár, vex vel og blómstrar mikið.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is