Ólafur Jóhann Sigurðsson - Á vordegi
Grundin eignast gullinn fífil,
geislafingur hlýir strjúka
lambakóng með lítinn hnýfil,
lambagrasið rauða og mjúka.

Vappar tjaldur, vellir spói,
verpir í broki mýrispýta.
Bráðum kveikir fenjaflói
fífublysið mjallahvíta.

Bráðum mun í morgunstillu
meðan þokan kveður dranga
ljósberi hjá lágri syllu
lyfta kolli til að anga.

Blíða daga, bjartar nætur
bugðast á með tærum hyljum
eftir laut sem litlir fætur
lásu forðum berum iljum.


Rosa 'White Pavement'
Ættkvísl   Rosa
     
Nafn  
     
Höfundur  
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'White Pavement'
     
Höf.   (Uhl 1991) Kanada.
     
Íslenskt nafn   Ígulrós, garðarós
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae).
     
Samheiti   Schnee-eule, Schnee Eule, Snow Owl’, ‘Uhlensch’.
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól–hálfskuggi.
     
Blómlitur   Hreinhvítur eða næstum hvítur.
     
Blómgunartími   Ágúst-september.
     
Hæð   Allt að 120 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Ígulrós, garðarós
Vaxtarlag   Foreldrar: 'Blanc Double De Coubert' 1892 X ?. ‘White Pavement’ er ígulrósarblendingur 20. aldar rós og ein af svo nefndum ‘pavement’ rósum. Runninn er með bogsveigðar greinar og blómstrar af og til yfir sumarið. Runninn er þýfður brúskur með nokkuð útstæðar greinar, verður 120(-150) sm hár og álíka breiður.
     
Lýsing   Blómin eru bollalaga, stór, fyllt, hreinhvít með áberandi gula fræfla, ilma mikið. Laufið er dökkgrænt og gljáandi, laust við sjúkdóma. Fallegir haustlitir og rauðar nýpur að haustinu.
     
Heimkynni   Yrki.
     
Jarðvegur   Frjór, vel framræstur, meðalrakur, en þolir magran jarðveg.
     
Sjúkdómar   Viðkvæm fyrir svartroti.
     
Harka   Z2
     
Heimildir   http://www3.sympaico.ca/galetta/tales/clandscape_pavement.html, http://www.kedemroses.com, www.cornhillnursery.com/retail/roses/rosea.htlm#RP, www.helpmefind,com/rosw/pl.php?n=6541, gardening.about.com/od/rose1/p/Rugosa-roses.htm
     
Fjölgun   Rótarskot.
     
Notkun/nytjar   ‘Pavement’ rósir eru jafn duglegar og þær eru fallegar. Þær þola sveiflur í hitastigi og þrífast vel bæði á sólríkum stað og í hálfskugga. Þær eru líka saltþolnar. Þrífst ekki vel þar sem er of heitt!
     
Reynsla   Rosa ‘White Pavement’ þrífst vel í garði á Akureyri, blómstrar mikið en síðustu blómin vilja rotna í haustrigningunum.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Ígulrós, garðarós
Ígulrós, garðarós
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is