Ólafur Jóhann Sigurðsson - Á vordegi
Grundin eignast gullinn fífil,
geislafingur hlýir strjúka
lambakóng með lítinn hnýfil,
lambagrasið rauða og mjúka.

Vappar tjaldur, vellir spói,
verpir í broki mýrispýta.
Bráðum kveikir fenjaflói
fífublysið mjallahvíta.

Bráðum mun í morgunstillu
meðan þokan kveður dranga
ljósberi hjá lágri syllu
lyfta kolli til að anga.

Blíða daga, bjartar nætur
bugðast á með tærum hyljum
eftir laut sem litlir fætur
lásu forðum berum iljum.


Rosa californica
Ættkvísl   Rosa
     
Nafn   californica
     
Höfundur   Cham. & Schldl.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn  
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Dökkbleikur.
     
Blómgunartími   Júlí-ágúst.
     
Hæð   Allt að 300 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Villirós. Runninn verður allt að 300 sm hár. Stilkar með bogna, flata þyrna, ungar greina þornhærðar. Blómleggir með þyrna.
     
Lýsing   Smáblöð 5-7, breiðoddbaugótt, 1-3 sm löng, einsagtennt (ekki kirtilhærð), mattgræn ofan, með aðlæg hár og dúnhærð og oft kirtilhærð neðan. Blómin í klasa, með háblöð, dökkbleik 4 sm breið og með daufan ilm. Bikarblöð hærð á ytra borði. Leggir sömuleiðis eða hárlausir. Nýpur smáar, hnöttóttar, með greinilegan háls, 1-1,5 sm breiðar. Einblómstrandi.
     
Heimkynni   Vestur-Bandaríkin suður til Mexikó.
     
Jarðvegur   Meðalfrjór, rakur, vel framræstur.
     
Sjúkdómar   Viðkvæm fyrir hunagnssvepp.
     
Harka   Z5
     
Heimildir   1, Krüssmann, G. 1978: Handbuch der Laubgeholze. Band III Berlin - Hamburg, http://www.welt-der-rosen,de/duftrosen/_duftrosen.htm, www.pfaf.org/user/Plant.aspx?LatinName=Rosa+californica
     
Fjölgun   Vetrargræðlingar, rótarskot, sveiggræðsla, sáning.
     
Notkun/nytjar   Í beð, sem stakstæður runni.
     
Reynsla   Rosa californica ‘Plena’ var sáð 1999 og gróðursett í beð 2004, vex nokkuð en engin blóm 2008 og 2009.
     
Yrki og undirteg.   Rosa californica ‘Plena’ er fíngerður runni, sem verður allt að 200 sm hár, greinarnar bogsveigðar. Blómin eru lausfyllt, hlýbleik til skærrauð, ilmandi.
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is