Jónas Hallgrímsson - Úr ljóðinu Dalvísa
Fífilbrekka! gróin grund!
grösug hlíð með berjalautum!
flóatetur! fífusund!
fífilbrekka! smáragrund!
yður hjá ég alla stund
uni best í sæld og þrautum;
fífilbrekka! gróin grund!
grösug hlíð með berjalautum!
Rosa gymnocarpa
Ættkvísl   Rosa
     
Nafn   gymnocarpa
     
Höfundur   Nutt. ex Torr. & A. Gray.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Húmrós
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól-hálfskuggi.
     
Blómlitur   Bleikur.
     
Blómgunartími   Júlí-ágúst.
     
Hæð   150-250 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Villirós. Runni 150-250 sm hár, stilkar uppréttir, grannir, hárlausir, með beina þyrna í pörum, þornhærðir. Smálauf 5-9, hárlaus, vita mjög mikið frá hvert öðru (!!) egglaga-oddbaugótt til kringlótt, hvass tvísagtennt og kirtilhærð. Axlablöð mjó.
     
Lýsing   Blómin bleik, stök eða tvö saman, allt að 3(4) sm breið. Bikarblöð egglaga, langydd, detta af, blómleggir hárlausir til kirtilþornhærðir. Nýpur hnöttóttar, sporvala til perulaga 6-8 mm breiðar, með mörg, lítil fræ.
     
Heimkynni   Vestur N-Amerika.
     
Jarðvegur   Frjór, meðalrakur, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   Z6
     
Heimildir   Huxley & al. 1992: The New Royal Horticultural Society Dictionary of Gardening 4, Krüssmann, G. 1978: Handbuch der Laubgeholze. Band III Berlin - Hamburg
     
Fjölgun   Sáning, sumargræðlingar.
     
Notkun/nytjar   Í blönduð trjá og runnabeð, í þyrpingar.
     
Reynsla   Sáð í Lystigarðinum 1992, kelur dálítið, vex vel og blómstraði mikið 2008 & 2009.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is