Málsháttur
Lengi býr að fyrstu gerð.
Rosa woodsii v. fendleri
Ættkvísl   Rosa
     
Nafn   woodsii
     
Höfundur   Lindl.
     
Ssp./var   v. fendleri
     
Höfundur undirteg.   (Crépin) Rydb.
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Valrós
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Lauffellandi.
     
Kjörlendi   Sól (-hálfskuggi).
     
Blómlitur   Lillableikur.
     
Blómgunartími   Júlí-ágúst.
     
Hæð   90-120 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Villirós. Lágvaxinn, einblómstrandi runni, þyrnar grannir, beinir. Axlablöð og leggir kirtilhærðir.
     
Lýsing   Laufin stór, mattgræn, oftast tvísagtennt með 3-9 smálauf. Blóm lillableik og með villirósailm, 4-8 krónublöð. Nýpur fallegar, margar, glansandi, litlar rauðgljáandi í klösum. Blóm og nýpur dálítið minni en á aðaltegundinni.
     
Heimkynni   Vestur N-Ameríka.
     
Jarðvegur   Meðalfrjór, meðalrakur, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   Z4
     
Heimildir   Krüssmann, G. 1978: Handbuch der Laubgeholze. Band III Berlin - Hamburg, http://www.welt-der-rosen,de/duftrosen/_duftrosen.htm, www.helpmefind.com/rose/pl.php?n=56231, davesgarden.com/guides/pf/go/62281/#b
     
Fjölgun   Sumar-, síðsumar eða vetrargræðlingar, ágræðsla, brumágræðsla.
     
Notkun/nytjar   Í trjá- og runnabeð. Talin mjög frostþolin.
     
Reynsla   Rosa woodsii v. fendleri var sáð í Lystigarðinum 1990, gróðursett í beð 1992, kelur dálítið. Sáð 1994, plantað í beð 2000, kelur talsvert, vex vel, engin blóm 2008 og 2009.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is