Jón Thoroddsen - Barmahlíð

Hlíðin mín fríða
hjalla meður græna
og blágresið blíða
og berjalautu væna,
á þér ástaraugu
ungur réð ég festa,
blómmóðir bezta!

Sá ég sól roða
síð um þína hjalla
og birtu boða
brúnum snemma fjalla.
Skuggi skauzt úr lautu,
skreið und gráa steina,
leitandi leyna.

Blómmóðir bezta,
beztu jarðargæða
gaf þér fjöld flesta
faðir mildur hæða.
Hver mun svo, er sér þig,
sálar þjáður dofa,
að gleymi guð lofa?

Hlíð, þér um haga
hlýr æ blási andi,
döggvi vordaga
dögg þig sífrjóvgandi!
Um þig aldrei næði,
af þér svo að kali,
vetur vindsvali!


Rosa 'Chubert Grant'
Ættkvísl   Rosa
     
Nafn  
     
Höfundur  
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'Chubert Grant'
     
Höf.   (Marshall) Kanada.
     
Íslenskt nafn  
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Djúpbleikur til millirauður.
     
Blómgunartími   Ágúst-September.
     
Hæð   90-120 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Runnarós / parklandsrós 90-120 sm og álíka breið.
     
Lýsing   Blómin djúpbleik til millirauð, hálffyllt-fyllt, bollalaga. Blómin ilma mikið. Stilkar mjög þyrnóttir. Þroskar hjúpa/nýpur.
     
Heimkynni   Yrki.
     
Jarðvegur   Frjór, vel framræstur, meðalrakur.
     
Sjúkdómar   Hefur viðnámsþrótt gegn svartroti, mjölsvepp og ryðsvepp.
     
Harka  
     
Heimildir   http://www.davesgarden.com
     
Fjölgun   Fjölgað með græðlingum.
     
Notkun/nytjar   Blómstrar á nýjum sprotum, snyrtið runnann snemma til að auka gróskuna/vöxtinn.
     
Reynsla   'Chubert Grant' var keypt í Lystigarðinn, þrífst þokkalega og blómstrar.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is