Jónas Hallgrímsson - Úr ljóðinu Dalvísa
Fífilbrekka! gróin grund!
grösug hlíð með berjalautum!
flóatetur! fífusund!
fífilbrekka! smáragrund!
yður hjá ég alla stund
uni best í sæld og þrautum;
fífilbrekka! gróin grund!
grösug hlíð með berjalautum!
Epimedium x rubrum
Ættkvísl   Epimedium
     
Nafn   x rubrum
     
Höfundur   Morr.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Skarlatsmítur
     
Ætt   Mítursætt (Berberidaceae).
     
Samheiti   E. alpinum x E. grandiflorum
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi  
     
Blómlitur   Skærrauður/gulur (tvílit blóm).
     
Blómgunartími   Maí-júní.
     
Hæð   25-35 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Skarlatsmítur
Vaxtarlag   Fjölær planta, 25-35 sm há.
     
Lýsing   Laufin eru tví-þrískipt, stundum meira skipt, smálauf 14x9 sm, egglaga, ydd, þunn, skærrauð í fyrstu, jaðar þyrnitenntur, blómstöngull með eitt blóm. Blómskipunin 10-23 blóma, lotin, blómleggir 1-2 sm, blóm 15-25 mm í þvermál, ytri bikarblöð 3-4x1,5-3 mm, grá með rauðar doppur, innri bikarblöð 10x4-5 mm, skærrauð, aflöng-lensulaga, útstæð. Krónublöð 10 mm, gul, skólaga. Fræflar 4 mm.
     
Heimkynni   Garðablendingur.
     
Jarðvegur   Frjór, fremur rakur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   6
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Skipting.
     
Notkun/nytjar   Sem undirgróður, í beð.
     
Reynsla   Er ekki í Lystigarðinum. Þrífst vel í Grasagarði Reykjavíkur.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Skarlatsmítur
Skarlatsmítur
Skarlatsmítur
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is