Halldór Kiljan Laxness - Heimsljós

"Fegursta blómið, það lifir í huldum stað, fæstir fá nokkurntíma að sjá það, mörgum sést yfir það, nokkrir kunna ekki skil á gildi þess, þeir sem uppgötva það munu ekki sjá annað blóm síðan. Allan daginn hugsar maður um það. Þegar maður sefur dreymir mann það. Maður deyr með nafn þess á vörum."

Euphorbia dulcis 'Chamaeleon'
Ættkvísl   Euphorbia
     
Nafn   dulcis
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'Chamaeleon'
     
Höf.   Réttara: ´Chameleon'
     
Íslenskt nafn   Sætumjólk
     
Ætt   Mjólkurjurtaætt (Euphorbiaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól, hálfskuggi.
     
Blómlitur   Grænn, purpura.
     
Blómgunartími   Júní.
     
Hæð   30-45 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Sætumjólk
Vaxtarlag   Fjölær jurt með svera, kjötkennda jarðstöngla.
     
Lýsing   Stönglar grannir, dúnhærðir, hreistur við grunninn. Stöngullauf aflöng til öfugegglaga, allt að 7 sm, græn, stundum með rauða slikju. Stórsveipir með 4-8 geisla, háblöð þríhyrnd-egglaga til tígullaga, græn, verða rauð seinna purpura eða gul. Aldin vörtótt, allt að 4 mm, fræ allt að 3 mm, rauðbrún. 'Chameleon' Laufin eru sterkpurpura, blómkollar gul-græn með purpura slikju að sumrinum.
     
Heimkynni   Yrki.
     
Jarðvegur   Frjór moldarjarðvegur, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   6
     
Heimildir   = 1, www.perennials.com/plants/euphorbia-dulcis-chameleon.htlm
     
Fjölgun   Sáning, skipting, græðlingar.
     
Notkun/nytjar   Í kanta, í ker, sem afskorin blóm. ATHUGIÐ: Safinn ertir húð og augu, plantan er eitruð ef hún er borðuð.
     
Reynsla   Þrífst vel í Grasagarði Reykjavíkur, myndirnar teknar þar.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Sætumjólk
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is