Jónas Hallgrímsson - Úr ljóðinu Dalvísa
Fífilbrekka! gróin grund!
grösug hlíð með berjalautum!
flóatetur! fífusund!
fífilbrekka! smáragrund!
yður hjá ég alla stund
uni best í sæld og þrautum;
fífilbrekka! gróin grund!
grösug hlíð með berjalautum!
Cornus alba 'Argenteo-Marginata'
Ættkvísl   Cornus
     
Nafn   alba
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'Argenteo-Marginata'
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Mjallarhyrnir
     
Ætt   Skollabersætt (Cornaceae)
     
Samheiti   Einnig oft undir ‘Elegantissima’.
     
Lífsform   Runni
     
Kjörlendi   Sól
     
Blómlitur   Gulhvítur
     
Blómgunartími   Júní-júlí
     
Hæð   1-2 m (- 3 m)
     
Vaxtarhraði  
     
 
Mjallarhyrnir
Vaxtarlag   Uppréttar eða uppsveigaðr greinar. Börkur mjög fallegur, greinarnar verða skær blóðrauðar á veturna og næstum því grænar aftur að vorinu. Greinar sléttar nema korkfrumurnar. Mergur hvítur.
     
Lýsing   Laufin eru mjórri en á aðaltegundinni og jaðrar hvítir. Ekki eins kröftug planta aðaltegundin með rauða stofna að vetrinum. Algeng í gróðrarstöðvum erlendis.
     
Heimkynni   Yrki.
     
Jarðvegur   Meðalrakur, frjór.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   3
     
Heimildir   = 1, http://www.hort.uconn.edu
     
Fjölgun   Græðlingar, sveiggræðsla.
     
Notkun/nytjar   Í runnabeð, blönduð beð
     
Reynsla   Hefur þrifist alveg þokkalega hér norðanlands. Fallegastur ef klipptur niður árlega.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Mjallarhyrnir
Mjallarhyrnir
Mjallarhyrnir
Mjallarhyrnir
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is