Í morgunsárið - Ragna Sigurðardóttir
Í morgunsárið greiðir hún sér með trékambi. Hægt með föstum
strokum. Vöxturinn er svo mikill að hana kitlar í svörðinn. Hún
strýkur hendinni yfir gróðurinn. Finnur blóm springa út undir
fingurgómunum. Sóleyjar og baldursbrár. Hún leggur kambinn frá
sér. Fer út í garðinn og krýpur. Kippir upp kartöflugrösum. Rótar og
grefur með berum höndum. Djúpt ofan í moldinni finnur hún sætar og
safaríkar appelsínur.
Ribes × pallidum 'Röd Hollandsk'
Ættkvísl   Ribes
     
Nafn   × pallidum
     
Höfundur   Otto & F. Dietr.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'Röd Hollandsk'
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Rifsber
     
Ætt   Garðaberjaætt (Grossulariaceae)
     
Samheiti   Ribes spicatum Robson ‘Rød Hollandsk’ / ‘Röda Hollänska’. R. rubrum ‘Red Dutch’.
     
Lífsform   Sumargrænn runni.
     
Kjörlendi   Sól og skjól.
     
Blómlitur   Föl gulgrænn.
     
Blómgunartími   Snemma vors.
     
Hæð   1-1,5 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Rifsber
Vaxtarlag  
     
Lýsing   Rauð hollensk er gamalreynt yrki sem hefur verið í ræktun á Íslandi frá a. m. k. um 1830. Yrkið er upprunnið í Hollandi, kom fram fyrir 1729. Þetta er eitt elsta ef ekki elsta yrkið sem þekkt er. Plantan er stór, kröftug, upprétt, þétt, myndar mikið af berjum, hraust, lauf meðalstór, hálfhjartalaga til næstum þverstýfð við grunninn. Blómin koma snemma, klasarnir eru fremur langir, meðalþéttblóma, hangandi og með mörg blóm. Bikarpípan grænleit, skállaga, bikarflipar snubbóttir, aðskildir, fölgulgrænir, fremur ógreinileg. Berin um mitt sumar , klasar langir og grannir, 10-18 berja, mjög strjál, klasaleggir langir, berin föst á leggjunum, breytileg að stærð, hnöttótt, skær, glansandi rauð, hýðið hárlaust, berholdið kjötkennt, þétt, mikil gæði. &
     
Heimkynni   Yrki
     
Jarðvegur   Frjór og jafnrakur.
     
Sjúkdómar   Hefur mikinn viðnámsþrótt gegn sjúkdómum.
     
Harka  
     
Heimildir   http://www.ars-grin.gov, http://www.landstolpi.is
     
Fjölgun  
     
Notkun  
     
Nytjar   Þroskar ber hérlendis vanalega um og eftir mánaðarmót ágúst/september. Uppskera getur brugðist norðanlands í köldum sumrum. Mikið ræktað um allt land
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla   Ribes × pallidum Otto & F. Dietr. (Ribes petraeum × R. spicatum spicatum)
     
Rifsber
Rifsber
Rifsber
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: bjorgvin@akureyri.is