Í morgunsárið - Ragna Sigurðardóttir
Í morgunsárið greiðir hún sér með trékambi. Hægt með föstum
strokum. Vöxturinn er svo mikill að hana kitlar í svörðinn. Hún
strýkur hendinni yfir gróðurinn. Finnur blóm springa út undir
fingurgómunum. Sóleyjar og baldursbrár. Hún leggur kambinn frá
sér. Fer út í garðinn og krýpur. Kippir upp kartöflugrösum. Rótar og
grefur með berum höndum. Djúpt ofan í moldinni finnur hún sætar og
safaríkar appelsínur.
Lilium 'Barbaresco'
Ættkvísl   Lilium
     
Nafn  
     
Höfundur  
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'Barbaresco'
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Skrautlilja*
     
Ætt   Liljuætt (Liliaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölæringur og laukplanta. Austurlandablendingur (Oriental hybrid).
     
Kjörlendi   Sólríkur vaxtarstaður og í skjóli fyrir næðingum.
     
Blómlitur   Blápurpura, doppótt með dökkum nöbbum.
     
Blómgunartími   September.
     
Hæð   (45)-60-90 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag  
     
Lýsing   Hæð plöntunnar er (45) 60-90 sm. Myndar mörg blóm. Blómin eru stjörnulaga og skállaga og vita út á við, 7,6-15 sm breið. Blóm skær blápurpura, doppótt með dökkum nöbbum, ilma. Blómhlífarblöðin eru með örmjóa hvíta jaðra.
     
Heimkynni   Yrki / Cultivar.
     
Jarðvegur   Frjór, ríkur af lífrænum efnum og vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka  
     
Heimildir   Upplýsingar af umbúðunum, http://www.davesgarden.com, http://www.willowcreekgarden.com, http://www.answers.yahoo.com, http://www.americanmeadows.com
     
Fjölgun   Fjölgað með hliðarlaukum. Einnig með því að skipta laukhreistrum. Myndar ekki fræ enda eru blómin ófrjó eða ef fræ myndast slær það til baka, ungu plönturnar verða ekki eins og foreldrarnir.
     
Notkun/nytjar   Vaxtarstaður þarf að vera sólríkur í skjóli fyrir næðingum, en ekki fast upp við suðurvegg þar verður of þurrt. Vökvun í meðallagi, þarf reglulega vökvun en ekki of mikla. Laukarnir eru gróðursettir 15 sm djúpt og með 20-30 sm millibili í beð eða beðjaðra. Mælt er með að setja lauf eða annað lífrænt yfir moldina til að halda betur rakanum í moldinni. Fjarlægið dauð blóm en látið stönglana standa áfram. Laukarnir eru látnir vera á sínum stað og blómstra ár eftir ár. Lifir lengur og blómstrar meira ef áburðargjöf er góð. Hægt að rækta í kerum.
     
Reynsla   Laukur var keyptur í Lystigarðinn 2005, blóm árlega og með blóm í september 2010, er á góðum stað innan um sumarblóm þar sem vökvað er reglulega og áburður borinn á.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla   AÐRAR UPPLÝSINGAR: Austurlandablendingar eru þekktar núorðið. Þeir eru í grunninn blendingar Lilium auratum og L. speciosum og þessir blendingar hafa verið víxlfrjóvgaðir með allmörgum liljutegundum frá meginlandi Asíu. Blóm þessara blendinga eru flöt, ilmandi og vita út á við. Plönturnar eru yfirleitt hávaxnar og blómin geta verið mjög stór. Dæmi er hin rauða ‘Star Gazer’ og hin hvíta ‘Casa Blanca’. Þessi yrki eru nú meðal þeirra vinsælustu í sölu og það er líka auðvelt að rækta þær.
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is