Jón Helgason - Úr ljóðinu Áfangar
Séð hef ég skrautleg suðræn blóm
sólvermd í hlýjum garði;
áburð og ljós og aðra virkt
enginn til þeirra sparði;
mér var þó löngum meir í hug
melgrasskúfurinn harði,
runninn upp þar sem Kaldakvísl
kemur úr Vonarskarði.
Lilium 'Casablanca'
Ættkvísl   Lilium
     
Nafn  
     
Höfundur  
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'Casablanca'
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Skrautlilja*
     
Ætt   Liljuætt (Liliaceae).
     
Samheiti   Lilium 'Casa Blanca'
     
Lífsform   Fjölæringur og laukplanta. Austurlandablendingur (Oriental hybrid).
     
Kjörlendi   Sólríkur vaxtarstaður í skjóli fyrir næðingum.
     
Blómlitur   Mjallahvítur eða næstum hvít.
     
Blómgunartími  
     
Hæð   60-120 sm eða allt að 180 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag  
     
Lýsing   Stönglar 60-120 sm eða allt að 180 sm háir. Blómin bollalaga, 150-300 mm breið, mjallahvít eða næstum hvít, trektlaga, ilma mikið og eru álút eða vita upp á við. Blómhlífarblöð baksveigð. Lauf slétt, glansandi.
     
Heimkynni   Yrki / Cultivar.
     
Jarðvegur   Frjór, ríkur af lífrænum efnum og vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka  
     
Heimildir   1, Upplýsingar af umbúðum, http://www.davesgarden.com, http://www.answers.yahoo.com, http://www.americanmeadows.com
     
Fjölgun   Fjölgað með hliðarlaukum. Einnig með því að skipta laukhreistrum. Ef safna á fræi eru fræhulstrin látin þorna á plöntunni, opnið þau og safnið síðan fræinu.
     
Notkun/nytjar   Vaxtarstaður þarf að vera sólríkur í skjóli fyrir næðingum, en ekki fast upp við suðurvegg þar verður of þurrt. Vökvun í meðallagi, þarf reglulega vökvun en ekki of mikla. Gróðursetjið laukana með 25 sm millibili í beð eða beðjaðra. Mælt er með að setja lauf eða annað lífrænt yfir moldina til að halda betur rakanum í moldinni. Fjarlægið dauð blóm en látið stönglana standa áfram. Laukarnir eru látnir vera á sínum stað í beðinu og blómstra ár eftir ár. Góð til afskurðar
     
Reynsla   Reyndist skammlíf. Laukur var gróðursettur í Lystigarðinn 2003, dauð 2004.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla   AÐRAR UPPLÝSINGAR: Austurlandablendingar eru þekktar núorðið. Þeir eru í grunninn blendingar Lilium auratum og L. speciosum og þessir blendingar hafa verið víxlfrjóvgaðir með allmörgum liljutegundum frá meginlandi Asíu. Blóm þessara blendinga eru flöt, ilmandi og vita út á við. Plönturnar eru yfirleitt hávaxnar og blómin geta verið mjög stór. Dæmi er hin rauða ‘Star Gazer’ og hin hvíta ‘Casablanca’. Þessi yrki eru nú meðal þeirra vinsælustu í sölu og það er líka auðvelt að rækta þær.
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is