Páll Ólafsson, Ljóðið Vetrarkveðja
Margt er gott að muna þér
þó mér þú fyndist langur.
Farðu vel, þú færðir mér
fögnuð bæði og angur.

Þó að nísti frostið fast
og fölni grænir hagar
eftir þetta kuldakast
koma betri dagar.
Lilium 'Corina'
Ættkvísl   Lilium
     
Nafn  
     
Höfundur  
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'Corina'
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Skrautlilja*
     
Ætt   Liljuætt (Liliaceae)
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölæringur og laukplanta. Asíublendingur (Asiatic hybrid, Mid-Century)
     
Kjörlendi   Sólríkur vaxtarstaður eða hálfskuggi.
     
Blómlitur   Dökkrauður með brúnrauðar doppur.
     
Blómgunartími   Ágúst.
     
Hæð   80-100 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag  
     
Lýsing   Blómin 75-300 mm breið, dökkrauð með brúnrauðar doppur, ilmandi, vita upp á við, blómhlífarblöðin aftursveigð. Laufin slétt, glansandi. Allt að 12 blóm á stöngli.
     
Heimkynni   Yrki / Cultivar.
     
Jarðvegur   Frjór og vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka  
     
Heimildir   http://www.digthedirt.com, http://www.davesgarden.com, http://www.answers.yahoo.com, http://www.americanmeadows.com, http://www.ces.ncsu.edu
     
Fjölgun  
     
Notkun/nytjar   Sólríkur vaxtarstaður eða hálfskuggi. Meðalvökvun, vökvið reglulega. EKKI ofvökva. Gróðursetjið laukana með 20-30 sm millibili. Hentug til að rækta í kerum. Blóm góð til afskurðar.
     
Reynsla   Reyndist skammlíf. Laukur var keyptur í Lystigarðinn 1995, löngu dauð.
     
Yrki og undirteg.   Asíublendingar eru nú sá hópur garðaliljuyrkja sem er lang algengastur, enda mjög auðvelt að rækta. Þessi blendingar úr þessum hóp kom fyrst fram í Bandaríkjunum og var nefndur Mid-Century blendingar í fyrstu. Í samanburði við austurlandablendinga blómstra Asíublendingar fyrr, plönturnar eru ekki eins hávaxnar, blómin eru ögn minni. Asíublendingar eru komnir af tegundum frá M og A Asíu, svo sem Lilium amabile, L. bulbiferum, L. dauricum og L. lancifolium (syn. L. tigrium) til að nefna nokkrar. Þess vegna eru litbrigðin mörg og breytileikinn mikill. Asíublendingar eru með blóm sem eru upprétt, vita upp á við eða út á við eða eru hangandi, venjulega ilmlaus og eru stjörnulaga með fjölda litbrigða svo sem gulu, appelsínulitu, bleiku, rauðu, hvítu og tvílitu. Nokkrar Asíublendinganna eru gulir svo sem 'Connecticut King' og þekktur rauður blendingur er 'Gran Paradiso'. Asíublendingar þrífast best með blómin í sólinni og neðri hluta stönglanna í skugga. Fjölgað með hreisturgræðlingum.
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is