Ólafur Jóhann Sigurðsson - Á vordegi
Grundin eignast gullinn fífil,
geislafingur hlýir strjúka
lambakóng með lítinn hnýfil,
lambagrasið rauða og mjúka.

Vappar tjaldur, vellir spói,
verpir í broki mýrispýta.
Bráðum kveikir fenjaflói
fífublysið mjallahvíta.

Bráðum mun í morgunstillu
meðan þokan kveður dranga
ljósberi hjá lágri syllu
lyfta kolli til að anga.

Blíða daga, bjartar nætur
bugðast á með tærum hyljum
eftir laut sem litlir fætur
lásu forðum berum iljum.


Lilium 'Prominence'
Ættkvísl   Lilium
     
Nafn  
     
Höfundur  
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'Prominence'
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Skrautlilja*
     
Ætt   Liljuætt (Liliaceae).
     
Samheiti   Lilium 'Firebrand'
     
Lífsform   Fjölæringur og laukplanta.
     
Kjörlendi   Sólríkur vaxtarstaður.
     
Blómlitur   Hárauður.
     
Blómgunartími   Ágúst-september.
     
Hæð   um 80 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Uppréttir, laufóttir stönglar.
     
Lýsing   Blómin eru hárauð, stjörnulaga, opin, vita út á við. Stönglar eru um 80 sm háir.
     
Heimkynni   Yrki / Cultivar.
     
Jarðvegur   Vel framræstir, frjór og hæfilega rakur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka  
     
Heimildir   Upplýsingar af umbúðunum.
     
Fjölgun   Hliðarlaukar.
     
Notkun/nytjar   Vaxtarstaður þarf að vera sólríkur og í skjóli fyrir næðingum, en ekki alveg upp við vegg, þar verður of þurrt. Jarðvegur þarf að vera vel framræstir, frjór og hæfilega rakur, ekki of þungur, með mikið af lífrænum efnum. Laukar eru gróðursettir 15 sm djúpt og með 25 sm millibili. Laukar eru látnir vera á sínum stað og blómstra þar ár eftir ár. Mælt er með að setja t.d. lauf yfir moldina svo að hún haldi rakanum betur. Klippið dauð blóm af en látið stönglana standa áfram. Liljan er höfð í blönduð beð og beðkanta.
     
Reynsla   Laukar voru keyptir í Lystigarðinn 1989, góðar 2002, blómstruðu mikið 2010 og stönglum hafði fjölga mikið síðan 1989.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla   AÐRAR UPPLÝSINGAR: Kom undir Lilium ‘Prominence’
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is