Sigfús Daðason - Vængjasláttur
Akureyri
mjög skreytt
reynitrjám.

Sá sem gengi um bæinn
á septemberkvöldi:
dimmur skuggi innfjarðarins
fylgdi honum á aðra hönd hvar sem hann færi,
lifandi, kvikur!
Sálarspegill!

Heilagur lundur
rís í hæðir.
Og gangi maður í lundinn
er hann þar einn með sjálfum sér.

Það gustar um limið
og fuglarnir í björtum trjákrónunum
fælast skóhljóð einmanans
og hviðra með vængjaslætti
yfir höfði hans og úti í myrkrinu.

Og upp fyrir honum rennur þá: hvílík
sú dýrð sem einmananum hlotnast.



Lilium martagon v. cattaniae
Ættkvísl   Lilium
     
Nafn   martagon
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var   v. cattaniae
     
Höfundur undirteg.   Visiani
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Túrbanlilja
     
Ætt   Liljuætt (Liliaceae).
     
Samheiti   L. dalmaticum Elwes, Lilium martagon L. ‘Cattaniae’. Réttara: L. marthagon L.
     
Lífsform   Fjölæringur og laukplanta.
     
Kjörlendi   Sólríkur vaxtarstaður.
     
Blómlitur   Dökkvínrauður.
     
Blómgunartími   Júlí-ágúst.
     
Hæð   50-100 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Uppréttir, laufóttir stönglar.
     
Lýsing   Stilkar og knúbbar hærðir. Blómin dökkvínrauð, engar doppur, með áberandi hvít hár á blómhlífarblöðunum. Oftast mjög blómviljug.
     
Heimkynni   Balkanskagi.
     
Jarðvegur   Kalkríkur, frjór, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   4
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Fjölgað með fræi sem spírar hægt og með laukhreistrum.
     
Notkun/nytjar   Falleg við hvítan vegg. Ræktuð á sólríkum stað eða í hálfskugga Kalkríkur jarðvegur, auðugur af lífrænum efnum.
     
Reynsla   Var sáð í Lystigarðinum 1986 og flutt út í beð 1988, blómstrar mikið árlega og þrífst vel.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is