Jón Helgason - úr ljóðinu Á Rauðsgili
Hugrökk teygist á háum legg
hvönnin fram yfir gljúfravegg,
dumbrauðu höfði um dægrin ljós
drúpir hin vota engjarós.


Rhododendron ‘Gartendirektor Rieger’
Ættkvísl   Rhododendron
     
Nafn  
     
Höfundur  
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   ‘Gartendirektor Rieger’
     
Höf.   (Hobbie 1947) Þýskaland.
     
Íslenskt nafn  
     
Ætt   Lyngætt (Ericaceae).
     
Samheiti   Rhododendron 'Gartendirektor Walter Rieger'.
     
Lífsform   Sígrænn runni.
     
Kjörlendi   Meðalskuggi.
     
Blómlitur   Rjómalitur m. bleikri slikju.
     
Blómgunartími  
     
Hæð   140-160 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Runninn er blómviljugur, verður breiðari en hár og nær 140-160 (-200) sm hæð á 10 árum, ekki með hreistur, fremur kröftugur og með frekar falleg, kringluleit lauf.
     
Lýsing   Foreldrar (♀ × ♂): ('Adriaan Koster' x R. williamsianum) =( ? x 'Mrs Lindsay Smith') x R. williamsianum =[? x ('George Hardy' x 'Duchess of Edinburgh')] [R. williamsianum x ]. Blómklasar strjálblóma, blómin bjöllulaga, stór, ilma ekki, eru rjómalit með bleikri slikju og rauðar doppur þegar þau eru ung.
     
Heimkynni   Yrki.
     
Jarðvegur   Frjór, lífefnaríkur, súr, hæfilega rakur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   Z7
     
Heimildir   7, http://www.rhododendrons.co.uk, http://www.esvelt.nl, http://www.hirsutum.info, Cox, Peter & Kenneth 1990: Guide to Choosing Rhododendrons – London
     
Fjölgun  
     
Notkun/nytjar  
     
Reynsla   Plantan var keypt í Lystigarðinn 2000, gróðursett í beð 2001. Vetrarskýling frá 2001 til vors 2007. Hefur yfirleitt kalið lítið, blóm stöku ár. Dauð 2010.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla   AÐRAR UPPLÝSINGAR: Sagður þola allt að - 20 °C erlendis.
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is