Jón Helgason - Úr ljóðinu Áfangar
Séð hef ég skrautleg suðræn blóm
sólvermd í hlýjum garði;
áburð og ljós og aðra virkt
enginn til þeirra sparði;
mér var þó löngum meir í hug
melgrasskúfurinn harði,
runninn upp þar sem Kaldakvísl
kemur úr Vonarskarði.
Rhododendron lapponicum
Ættkvísl   Rhododendron
     
Nafn   lapponicum
     
Höfundur   (L.) Wahlenb.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Svarðlyngrós
     
Ætt   Lyngætt (Ericaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Sígrænn runni.
     
Kjörlendi   Hálfskuggi.
     
Blómlitur   Fjóliblá-bleikrauður.
     
Blómgunartími   Vorblómstrandi.
     
Hæð   3-10 (-100) sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Marggreindur, jarðlægur eða uppréttur, sígrænn runni sem verður allt að 1 m hár. Laufin 4-25 × 2-9 mm, aflöng-oddbaugótt til oddbaugótt-egglaga, neðraborð móleitt til rauðbrúnt, hreistur ná saman, sum föl gulbrún, önnur rauðbrún.
     
Lýsing   Klasar 3-6 blóma. Bikar 1-2 mm, flipar þríhyrndir, mismikið hreistraðir, jaðrar hærðir. Króna 6,5-14 mm, breiðtrektlaga, fjólublá-bleikrauð til purpura, sjaldan hvítleit. Fræflar 5-10. Eggleg með hreistur, stíll 1-1,5 sm, lengri en fræflarnir, hreisturlaus og hárlaus. Fræhýði 4-6 mm, með hreistur.
     
Heimkynni   Pólhverf.
     
Jarðvegur   Súr, lífefnaríkur, rakur, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   Z2.
     
Heimildir   1,7
     
Fjölgun   Sáning, síðsumargræðlingar.
     
Notkun/nytjar   Í beðkanta.
     
Reynsla   Engin reynsla. Kom sem græðlingur 2010. Talin mjög erfið í ræktun.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is