Ólafur Jóhann Sigurðsson - Á vordegi
Grundin eignast gullinn fífil,
geislafingur hlýir strjúka
lambakóng með lítinn hnýfil,
lambagrasið rauða og mjúka.

Vappar tjaldur, vellir spói,
verpir í broki mýrispýta.
Bráðum kveikir fenjaflói
fífublysið mjallahvíta.

Bráðum mun í morgunstillu
meðan þokan kveður dranga
ljósberi hjá lágri syllu
lyfta kolli til að anga.

Blíða daga, bjartar nætur
bugðast á með tærum hyljum
eftir laut sem litlir fætur
lásu forðum berum iljum.


Chamaecyparis lawsoniana 'Albovariegata'
Ættkvísl   Chamaecyparis
     
Nafn   lawsoniana
     
Höfundur   (A. Murray) Parl.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'Albovariegata'
     
Höf.   (Vetch).
     
Íslenskt nafn   Fagursýprus
     
Ætt   Sýprusætt (Cupressaceae).
     
Samheiti   C. lawsoniana f. albomaculata Schnd., C. lawsoniana f. albopicta Schnd.
     
Lífsform   Sígrænn dvergrunni.
     
Kjörlendi   Sól-hálfskuggi.
     
Blómlitur   KK blóm fagurrauð.
     
Blómgunartími   Snemma vors.
     
Hæð   2-3 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Dvergform, egg- til keilulaga í vextinum, 2-3 m hátt, toppur nokkuð bogadreginn.
     
Lýsing   Nálar dökkgrænar, með mörgum hvítum blettum, að hluta til líka með hvíta ársprota, sem drepast að mestu leyti að vetrinum.
     
Heimkynni   Yrki.
     
Jarðvegur   Frjór, fremur rakur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   6
     
Heimildir   7
     
Fjölgun  
     
Notkun/nytjar  
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til ein planta sem sáð var til 1989, plantað í beð 2004. Kelur lítið.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is