Ólafur Jóhann Sigurðsson - Á vordegi
Grundin eignast gullinn fífil,
geislafingur hlýir strjúka
lambakóng með lítinn hnýfil,
lambagrasið rauða og mjúka.

Vappar tjaldur, vellir spói,
verpir í broki mýrispýta.
Bráðum kveikir fenjaflói
fífublysið mjallahvíta.

Bráðum mun í morgunstillu
meðan þokan kveður dranga
ljósberi hjá lágri syllu
lyfta kolli til að anga.

Blíða daga, bjartar nætur
bugðast á með tærum hyljum
eftir laut sem litlir fætur
lásu forðum berum iljum.


Chamaecyparis lawsoniana ‘Stewartii’
Ættkvísl   Chamaecyparis
     
Nafn   lawsoniana
     
Höfundur   (A. Murray) Parl.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   ‘Stewartii’
     
Höf.   (D. Stewart)
     
Íslenskt nafn   Fagursýprus
     
Ætt   Sýprisætt (Cupressaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Sígrænn runni - lítið tré.
     
Kjörlendi   Sól-hálfskuggi.
     
Blómlitur   KK blóm fagurrauð.
     
Blómgunartími   Snemma vors.
     
Hæð   2-5 m (-10 m)
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Keilulaga, fremur kröftuglega vaxinn runni eða lítið tré.
     
Lýsing   Allt að 10 m hátt tré erlendis, en mun lægra hér. Gamlar greinar og ungar fremur uppréttar, smágreinar gullgular, nær grunni eru þær þó meira gulgrænar, geta verið gulbrúnar að vetrinum.
     
Heimkynni   Yrki.
     
Jarðvegur   Frjór, fremur rakur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   6
     
Heimildir   7, Roloff/Bärtels 1996: Gehölze
     
Fjölgun  
     
Notkun/nytjar  
     
Reynsla   Til er í Lystigarðinum ein planta sem sáð var 1989, gróðursett í beð 2001, vetrarskýling 2001-2007. Ekkert kal.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is