Sigfús Daðason - Vængjasláttur
Akureyri
mjög skreytt
reynitrjám.

Sá sem gengi um bæinn
á septemberkvöldi:
dimmur skuggi innfjarðarins
fylgdi honum á aðra hönd hvar sem hann færi,
lifandi, kvikur!
Sálarspegill!

Heilagur lundur
rís í hæðir.
Og gangi maður í lundinn
er hann þar einn með sjálfum sér.

Það gustar um limið
og fuglarnir í björtum trjákrónunum
fælast skóhljóð einmanans
og hviðra með vængjaslætti
yfir höfði hans og úti í myrkrinu.

Og upp fyrir honum rennur þá: hvílík
sú dýrð sem einmananum hlotnast.



Juniperus chinensis ‘Mint Julep’
Ættkvísl   Juniperus
     
Nafn   chinensis
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   ‘Mint Julep’
     
Höf.   (Monrovia 1960).
     
Íslenskt nafn   Kínaeinir
     
Ætt   Sýprisætt (Cupressaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Sígrænn runni.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Karlblóm gulleit, kvenblóm græn.
     
Blómgunartími   Haust.
     
Hæð  
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Breiðvaxið yrki, með barr þar sem gamlar greinar eru bogsveigðar til uppréttar.
     
Lýsing   Barr skærgrænt, aðlægt eins og á skærgræna yrkinu ‘Pfitzeriana’.
     
Heimkynni   Yrki.
     
Jarðvegur   Þurr til meðalrakur, meðalfrjór.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   4
     
Heimildir   7
     
Fjölgun   Sumargræðlingar, síðsumargræðlingar.
     
Notkun/nytjar   Í þyrpingar, í steinhæðir í beð og ef til vill í ker.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til ein planta sem keypt var 2000, gróðursett í beð 2001, vetrarskýling 2001-2007, kelur dálítið, stundum talsvert.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is