Málsháttur
Mjór er mikils vísir.
Juniperus chinensis ‘Pfitzeriana’
Ættkvísl   Juniperus
     
Nafn   chinensis
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   ‘Pfitzeriana’
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Kínaeinir
     
Ætt   Sýprisætt (Cupressaceae).
     
Samheiti   J. chinensis pfitzeriana Späth., J. chinensis v. pendula Beissn. (engin lýsing), J. sabina ‘Knap Hill’.
     
Lífsform   Sígrænn runni.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Karlblóm gulleit, kvenblóm græn.
     
Blómgunartími   Haust.
     
Hæð   1-3 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Venjulega mjög útbreidd, allt að 3 m hátt og álíka breitt yrki eða í undantekningartilvikum allt að 5 m breitt.
     
Lýsing   Aðalgreinar gisstæðar og bognar, útstæðar, oft líka uppbundnar í ræktun, endar slútandi. Nálar að hluta hreisturkennd og græn og innan í plöntunni er líka nállaga barr, 4 í kransi, að ofan bláleit, langrákótt, hvassydd. Aðeins ♂ plöntur eru þekktar.
     
Heimkynni   Yrki.
     
Jarðvegur   Þurr til meðalrakur, meðalfrjór.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   4
     
Heimildir   7
     
Fjölgun   Sumargræðlingar, síðsumargræðlingar.
     
Notkun/nytjar   Í þyrpingar, í steinhæðir, í beð.
     
Reynsla   Ekki til í Lystigarðinum.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is