Halldór Kiljan Laxness - Heimsljós

"Fegursta blómið, það lifir í huldum stað, fæstir fá nokkurntíma að sjá það, mörgum sést yfir það, nokkrir kunna ekki skil á gildi þess, þeir sem uppgötva það munu ekki sjá annað blóm síðan. Allan daginn hugsar maður um það. Þegar maður sefur dreymir mann það. Maður deyr með nafn þess á vörum."

Thuja occidentalis ‘Rosenthalii’
Ættkvísl   Thuja
     
Nafn   occidentalis
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   ‘Rosenthalii’
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Kanadalífviður
     
Ætt   Sýprisætt (Cupressaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Sígrænt, lítið tré.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur  
     
Blómgunartími   Júní.
     
Hæð   2-3 m
     
Vaxtarhraði   Hægvaxta.
     
 
Vaxtarlag   Mjög sérstakt, hægvaxta, súlulaga yrki, sem verður aðeins 2-3 m hátt á 50 árum, greinar mjög þéttar.
     
Lýsing   Greinar stuttar, stinnar. Ársprotar standa þétt saman ± í einu lóðréttu plani.
     
Heimkynni   Yrki.
     
Jarðvegur   Rakur, frjór, lítið eitt súr.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   Z2
     
Heimildir   = 7
     
Fjölgun   Vetrargræðlingar.
     
Notkun/nytjar   Í þyrpingar, í raðir.
     
Reynsla   Planta frá 2005 er í uppeldi í Lystigarðinum.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is