Málsháttur
Lengi býr að fyrstu gerð.
Cotoneaster obscurus
Ættkvísl   Cotoneaster
     
Nafn   obscurus
     
Höfundur   Rehder & E.H. Wilson
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Dökkmispill
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae)
     
Samheiti  
     
Lífsform   Lauffellandi runni
     
Kjörlendi   Sól
     
Blómlitur   Hvítur eða hvítur með bleiku
     
Blómgunartími   Sumar
     
Hæð   1-2 m (-3 m)
     
Vaxtarhraði  
     
 
Dökkmispill
Vaxtarlag   Lauffellandi runni, allt að 3 m hár í heimkynnum sínum. Greinar útstæðar, langar og lotnar, dúnhærðar, seinna rauðbrúnar og hárlausar.
     
Lýsing   Laufin allt að 4 sm, egglaga-oddbaugótt, langydd, mattgræn ofan, með strjála dúnhæringu, grágul lóhærð neðan. Blómin hvít eða hvít með bleiku, 3-10 í knippi, krónublöð upprétt. Fræflar 20. Aldin allt að 9 mm, rauð eða purpuralit, kjarnar/fræ 4-5.
     
Heimkynni   Kína (Sichuan, Huph)
     
Jarðvegur   Léttur, vel framræstur, frjór.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   5
     
Heimildir   1
     
Fjölgun   Haustsáning, sumargræðlingar.
     
Notkun/nytjar   Sem stakstæður runni, í þyrpingar, í blönduð beð.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni sem sáð var til 2006 og er í sólreit 2012.
     
Yrki og undirteg.   Cotoneaster obscurus var. cornifolius Rehd. & Wils. með stærri lauf, 4-7 sm, ullhærð á efra borði, dúnhærð á neðra borði, aldin stór, blóðrauð.
     
Útbreiðsla  
     
Dökkmispill
Dökkmispill
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is