Jón Thoroddsen - Barmahlíð
Hlíðin mín fríða
hjalla meður græna
og blágresið blíða
og berjalautu væna,
á þér ástaraugu
ungur réð ég festa,
blómmóðir bezta!
Sá ég sól roða
síð um þína hjalla
og birtu boða
brúnum snemma fjalla.
Skuggi skauzt úr lautu,
skreið und gráa steina,
leitandi leyna.
Blómmóðir bezta,
beztu jarðargæða
gaf þér fjöld flesta
faðir mildur hæða.
Hver mun svo, er sér þig,
sálar þjáður dofa,
að gleymi guð lofa?
Hlíð, þér um haga
hlýr æ blási andi,
döggvi vordaga
dögg þig sífrjóvgandi!
Um þig aldrei næði,
af þér svo að kali,
vetur vindsvali! |
|
Ættkvísl |
|
Cytisus |
|
|
|
Nafn |
|
hirsutus |
|
|
|
Höfundur |
|
L. |
|
|
|
Ssp./var |
|
|
|
|
|
Höfundur undirteg. |
|
|
|
|
|
Yrki form |
|
|
|
|
|
Höf. |
|
|
|
|
|
Íslenskt nafn |
|
Loðsópur |
|
|
|
Ætt |
|
Ertublómaætt (Fabaceae). |
|
|
|
Samheiti |
|
Chamaecytisus hirsutus (L.) Link. |
|
|
|
Lífsform |
|
Jarðlægur lauffellandi runni |
|
|
|
Kjörlendi |
|
Sól |
|
|
|
Blómlitur |
|
Sterkgulur |
|
|
|
Blómgunartími |
|
Síðla vors-snemmsumars |
|
|
|
Hæð |
|
0,5-1,2 m |
|
|
|
Vaxtarhraði |
|
|
|
|
|
|
|
|
Vaxtarlag |
|
Runni, 0,2 – 1 m hár, Greinar fíndúnhærðar, uppsveigðar eða uppréttar eða oftar jarðlægur. |
|
|
|
Lýsing |
|
Smálauf 0,2-5 × 0,4-1 sm, öfugegglaga til oddbaugótt, ögn loðin eða hárlaus á efra borði, silkihærð til loðin á neðra borði. Blómin stór, sterkgul, 2-4 saman í blaðöxlum, engin stoðblöð, bikar 12,5 mm, hærður. Fáni 18-30 sm, stöku sunnum brúnflikróttur við grunninn, oft ögn loðinn. Belgir 2,5-4 × 0,5-0,8 sm, bandlaga, þéttloðnir. |
|
|
|
Heimkynni |
|
M S & SA Evrópa |
|
|
|
Jarðvegur |
|
Léttur, framræstur, meðalrakur. |
|
|
|
Sjúkdómar |
|
|
|
|
|
Harka |
|
6 |
|
|
|
Heimildir |
|
= 1, http://www.missouribotanic.org, http://en.wikipedia.org |
|
|
|
Fjölgun |
|
Sumargræðlingar, sáning. |
|
|
|
Notkun/nytjar |
|
Í blönduð beð. |
|
|
|
Reynsla |
|
Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni, sem sáð var til 1998 og gróðursett í beð 2000. Hefur reynst nokkuð vel í Lystigarðinum og með prýði í Grasagarði Reykjavíkur.
|
|
|
|
Yrki og undirteg. |
|
|
|
|
|
Útbreiðsla |
|
|
|
|
|
|
|