Málsháttur
Mjór er mikils vísir.
Ribes nigrum ‘Jänkisjärvi’
Ættkvísl   Ribes
     
Nafn   nigrum
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   ‘Jänkisjärvi’
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Sólber
     
Ætt   Garðaberjaætt (Grossulariaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Lauffellandi runni
     
Kjörlendi   Sól og skjól.
     
Blómlitur   Grænn á ytra borði, rauðhvítur á því innra.
     
Blómgunartími   Snemmsumars.
     
Hæð   1-1,5 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Harðgerður, uppréttur runni, greinar stinnar.
     
Lýsing   'Jänkisjärvi' er úrval villtra sólberja í N-Svíþjóð og hefur verið í ræktun frá því fyrir 1940. Runninn er fremur snemmþroska, með stór ber og góða uppskeru. &
     
Heimkynni   Kvæmi.
     
Jarðvegur   Frjór, rakur, vel framræstur.
     
Sjúkdómar   Mikil mótstaða gegn mjölsvepp
     
Harka   5
     
Heimildir   http://www.vaxtwko.nu, http://.agropub.no, http://www.lbhi.is, http://sprl.ars.usda.gov
     
Fjölgun   Síðsumar- og/eða vetrargræðlingar.
     
Notkun/nytjar   Berin eru notuð í mauk, saft eða þau eru fryst.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til ein planta, græðlingur frá Korpu 1983. Kelur ekkert, er um 1,4 m há, nokkur ber 2011, er á of þurrum og skuggsælum stað. Yrkið hentar vel norðan og austanlands. Hættir til að fara að vaxa snemma og lenda í seinum vorhretum sunnanlands.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla   AÐRAR UPPLÝSINGAR: Berin hentug til uppskeru með tínu eða vél. Jänkisjärvi er nafn á þorpi í N Svíþjóð.
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is