Málsháttur
Engin er rós án þyrna.
Ribes cynosbati
Ættkvísl   Ribes
     
Nafn   cynosbati
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Rakkastikill
     
Ætt   Garðaberjaætt (Grossulariaceae).
     
Samheiti   Grossularia cynosbati (L.) Mill.
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Hálfskuggi.
     
Blómlitur   Grænn.
     
Blómgunartími   Maí-júní.
     
Hæð   1-1,5 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Lauffellandi runni, 1-1,5 m hár, greinar grannar, dálítið hangandi, mjög þyrnótt; þyrnarnir einfaldir eða 3-skiptir, allt að 1 sm langir (mjög sjaldan þyrnalaus).
     
Lýsing   Lauf 3-5 sm, kringlótt með 3-5 flipum, jaðrar skertir, sagtenntir, mjúk hár. Blómskipunin 2-3 blóma klasar, blómin bjöllulaga, græn. Bikarblöð grænbrún. Fræflar ná lítið eitt fram úr blóminu. Berin 1 sm breið, hnöttótt eða oddbaugótt, vínrauð, með þornhár, æt.&
     
Heimkynni   A Bandaríkin.
     
Jarðvegur   Meðalfrjór, sendinn.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   2
     
Heimildir   1, 28
     
Fjölgun   Sáning, græðlingar.
     
Notkun/nytjar   Plantan er góð sem undirgróður.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til ein planta sem sáð var til 1980 og önnur sem sáð var til 1988, kala dálítið af og til.
     
Yrki og undirteg.   f. inerme Rehd. Eggleg og ber ekki þornhærð.
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is