Þuríður Guðmundsdóttir - Rætur
Ég geng um skrúðgarða borgar
og blómin horfa á mig
litríkum framandi augum
og ilmur þeirra er alltaf nýr

Í fjarska situr fölblá gleymmérei
á fötum lítils barns

Því blágresi, holtasóley og steinbrjótur
voru blóm bernsku minnar

Og rætur þeirra
verða alltaf mínar

Ribes lacustre
Ættkvísl   Ribes
     
Nafn   lacustre
     
Höfundur   (Pers.) Poir.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Væturifs
     
Ætt   Garðaberjaætt (Grossulariaceae).
     
Samheiti   Limnobotrya lacustris (Pers.) Rydb.
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Flóar og blautir skógar.
     
Blómlitur   Brúnrauður.
     
Blómgunartími   Maí-júní.
     
Hæð   - 1 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Lauffellandi runni allt að 1 m hár, greinar grannar, dálítið hangandi, þétt þornhærðar og broddóttar, þyrnar 3-9, 2-4 mm langir,í hálfhring kringum hvern lið. Fallegur runni með grannar blómskipanir með brúnrauð blóm.
     
Lýsing   Lauf 3-6 sm breið, kringlótt, 5-flipótt, flipar mjög skertir. Laufin slétt eða öllu heldur kirtildúnhærð. Blómskipunin gisin, hangandi, klasarnir allt að 9 sm langir, blómin trektlaga, grænrauð, bikarflipar útstæðir. Berin smá, 0,5 sm í þvermál, þakin kirtilþornhárum, svört.
     
Heimkynni   N Bandaríkin.
     
Jarðvegur   Blautur, meðalfrjór.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   4
     
Heimildir   1, 28
     
Fjölgun   Sáning, síðsumargræðlingar.
     
Notkun/nytjar   Í trjá- og runnabeð, í þyrpingar og víðar.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum eru til plöntur með þessu nafni sem sáð var 1985 og 1988, þær hafa kalið dálítið af og til. Sú elsta er 1,1 m há og þroskaði ber 2011, annars eru allar plönturnar aðþrengdar 2011.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is