Sigfús Daðason - Vængjasláttur
Akureyri
mjög skreytt
reynitrjám.

Sá sem gengi um bæinn
á septemberkvöldi:
dimmur skuggi innfjarðarins
fylgdi honum á aðra hönd hvar sem hann færi,
lifandi, kvikur!
Sálarspegill!

Heilagur lundur
rís í hæðir.
Og gangi maður í lundinn
er hann þar einn með sjálfum sér.

Það gustar um limið
og fuglarnir í björtum trjákrónunum
fælast skóhljóð einmanans
og hviðra með vængjaslætti
yfir höfði hans og úti í myrkrinu.

Og upp fyrir honum rennur þá: hvílík
sú dýrð sem einmananum hlotnast.



Ribes petraeum v. atropurpureum
Ættkvísl   Ribes
     
Nafn   petraeum
     
Höfundur   Wulfen
     
Ssp./var   v. atropurpureum
     
Höfundur undirteg.   (C.A.Mey) Schneid.
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Steinarifs
     
Ætt   Garðaberjaætt (Grossulariaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól, hálfskuggi.
     
Blómlitur   Purpura og hvítleitur.
     
Blómgunartími   Snemmsumars.
     
Hæð   Allt að 2 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Uppréttur runni, 1,5 m hár eða hærri, greinar kröftugar, hárlausar, grábrúnar.
     
Lýsing   Lauf allt að 15 sm í þvermál, 3-flipótt, hárlaus, ekki hrukkótt. Blómskipun 2-4 sm klasi, með um 15 blóm, blómin purpuralit á ytra borði en hvítleit innan. Diskur ekki með þykkan vef við grunn blómagnanna. Aldin svart-rautt.
     
Heimkynni   Síbería.
     
Jarðvegur   Frjór-jafn rakur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   6
     
Heimildir   1
     
Fjölgun   Síðsumar- eða vetrargræðlingar.
     
Notkun/nytjar   Óklippt limgerði.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni, til hennar var sáð 1980. Hún kelur lítið sem ekkert, er um 1 m há 2011.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is