Ólafur Jóhann Sigurðsson - Á vordegi
Grundin eignast gullinn fífil,
geislafingur hlýir strjúka
lambakóng með lítinn hnýfil,
lambagrasið rauða og mjúka.

Vappar tjaldur, vellir spói,
verpir í broki mýrispýta.
Bráðum kveikir fenjaflói
fífublysið mjallahvíta.

Bráðum mun í morgunstillu
meðan þokan kveður dranga
ljósberi hjá lágri syllu
lyfta kolli til að anga.

Blíða daga, bjartar nætur
bugðast á með tærum hyljum
eftir laut sem litlir fætur
lásu forðum berum iljum.


Spiraea japonica ‘Japanese Dwarf’
Ættkvísl   Spiraea
     
Nafn   japonica
     
Höfundur   (L.) Desv
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   ‘Japanese Dwarf’
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Japanskvistur
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól og skjól (eða dálítill skuggi).
     
Blómlitur   Bleikur.
     
Blómgunartími   Sumar.
     
Hæð   - 30 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Dvergvaxinn og þéttvaxinn runni um 30 sm hár, vex um 5 sm á ári.
     
Lýsing   Blómin eru bleik, minna á yrkið ‘Little Princess’.
     
Heimkynni   Yrki.
     
Jarðvegur   Meðalfrjór, meðalrakur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   Z5
     
Heimildir   http://www.kurowski.pl/pl/katalog.php?action=9-179
     
Fjölgun   Sumargræðlingar.
     
Notkun/nytjar   Gott yrki í beð og steinhæðir.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er ein planta sem sáð var til 2006 og gróðursett í beð 2007, fremur falleg planta með blóm 2011.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla   AÐRAR UPPLÝSINGAR: Nýtt, mjög verðmætt yrki.
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is