Ólafur Jóhann Sigurðsson - Á vordegi
Grundin eignast gullinn fífil,
geislafingur hlýir strjúka
lambakóng með lítinn hnýfil,
lambagrasið rauða og mjúka.

Vappar tjaldur, vellir spói,
verpir í broki mýrispýta.
Bráðum kveikir fenjaflói
fífublysið mjallahvíta.

Bráðum mun í morgunstillu
meðan þokan kveður dranga
ljósberi hjá lágri syllu
lyfta kolli til að anga.

Blíða daga, bjartar nætur
bugðast á með tærum hyljum
eftir laut sem litlir fætur
lásu forðum berum iljum.


Syringa reticulata ssp. pekinensis
Ættkvísl   Syringa
     
Nafn   reticulata
     
Höfundur   (Blume) Hara
     
Ssp./var   ssp. pekinensis
     
Höfundur undirteg.   (Ruprecht) Green & Chang
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Drekasýrena / Spegilsýrena
     
Ætt   Smjörviðarætt (Oleaceae).
     
Samheiti   S. pekinensis Ruprecht.
     
Lífsform   Lauffellandi runni eða lítið tré.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Rjómahvítur.
     
Blómgunartími   Júlí
     
Hæð   Allt að 5 m eða hærri.
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Uppréttur, lauffellandi runni eða lítið tré allt að 5 sm hátt eða hærra.
     
Lýsing   Lauf lensulaga til egglaga eða breiðegglaga, 4-8×2-5 sm, hárlaus, grunnur yddur til bogadreginn. Laufleggir 1,5-3 sm langir, grannir. Blómskipunin hárlaus. Krónupípa 1,5 mm löng, flipar 2 mm langir. Hýði 1-2 sm, toppur yddur.
     
Heimkynni   N Kína. Mongólía.
     
Jarðvegur   Rakur, vel framræstur, frjór.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   H1
     
Heimildir   1,
     
Fjölgun   Sáning, græðlingar.
     
Notkun/nytjar   Í beð, í þyrpingar, sem stakstæður runni eða tré.
     
Reynsla   Ekki í Lystigarðinum en hefur verið sáð (2010).
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is