Málsháttur
Eigi fellur tré við hið fyrsta högg.
Prunus pedunculata
Ættkvísl   Prunus
     
Nafn   pedunculata
     
Höfundur   (Pall.) Maxim.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Síberíumandla*
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól og skjól.
     
Blómlitur   Bleikur.
     
Blómgunartími   Vor-snemmsumars.
     
Hæð   - 2 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Lauffellandi, uppréttur, ávalur runni allt að 2 m hár, getur orðið hátt tré. Greinar gleiðgreindar.
     
Lýsing   Lauf allt að 5×1 sm aflöng-öfugegglaga eða aflöng-egglaga, odddregin, grunnur fleyglaga, hvasstennt, randhærð-dúnhærð. Laufleggir allt að 5 mm, axlablöð mjó, allt að 4 mm. Blómin bleik, stök, blómleggir allt að 8 mm, randhærðir. Bikartrekt allt að 5×4 mm, bjöllulaga-bikarlaga, hárlaus, flipar breið-þríhyrndir, baksveigðir. Krónublöð allt að 1 sm í þvermál, breið-kringlótt. Stíll hárlaus, eggleg þéttdúnhærð, Steinaldin 1 sm, egglaga eða aflöng-egglaga, dúnhærð. Steinar egglaga, mjög ljósbrúnir, snarpir en ekki holóttir.
     
Heimkynni   Síbería.
     
Jarðvegur   Djúpur, vel framræstur jarðvegur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   Z4
     
Heimildir   1, http://www.gardening.eu
     
Fjölgun   Sáning, græðlingar.
     
Notkun/nytjar   Ung tré þurfa stuðning með sterkum prikum, einkum þar sem vindasamt er, svo að laufið rifni ekki af og plantan eigi auðveldara með að festa rætur. Vökvið eftir þörfum. Einkum eru það ungar plöntur sem þarfa vökva, en gömlum plöntum nægir oftast rigningin. Berið áburð á snemma vors eða að haustinu, notið lifrænan áburð eða gamlan búfjáráburð, blandið nokkrum fötum saman við moldina kringum trjástofninn annað eða þriðja hvert ár eða þegar tréð er gróðursett.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til ein planta sem sáð var 2000 og gróðursett í beð 2004, þrífst ekki vel, mikið kalin 2011.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla   Löglegt nafn samkvæmt The Plant List of Royal BG, Kew and Missouri BG (2011) er: Amygdalus pedunculata Pall.
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is