Ólafur Jóhann Sigurðsson - Á vordegi
Grundin eignast gullinn fífil,
geislafingur hlýir strjúka
lambakóng með lítinn hnýfil,
lambagrasið rauða og mjúka.

Vappar tjaldur, vellir spói,
verpir í broki mýrispýta.
Bráðum kveikir fenjaflói
fífublysið mjallahvíta.

Bráðum mun í morgunstillu
meðan þokan kveður dranga
ljósberi hjá lágri syllu
lyfta kolli til að anga.

Blíða daga, bjartar nætur
bugðast á með tærum hyljum
eftir laut sem litlir fætur
lásu forðum berum iljum.


Malus × purpurea
Ættkvísl   Malus
     
Nafn   × purpurea
     
Höfundur   (Barbier) Rehd.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Pupuraepli
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae)
     
Samheiti   M. atrosanguinea × M. × adstringens Zab. ‘Niedzewetzkyana’
     
Lífsform   Lauffellandi tré.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Purpurarauður.
     
Blómgunartími   Vor.
     
Hæð   3-7 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Stór, uppréttur runni eða lítið tré.
     
Lýsing   Stór runni eða lítið tré, sem verður 3-7 m hátt erlendis, kröftugt, ársprotar langir, börkur dökk rauð-svartur. Krónan er breið og hvelfd. Lauf 8-9 sm, egglaga, ydd, bogtennt, hærð beggja vegna, stundum flipótt á sterkbyggðum greinum, brúnrauð í fyrstu en verða græn, glansandi. Blóm stök, 3-4 sm breið, purpurarauð, lýsast fljótt. Aldin 1,5-2-5 sm, kúlulaga, purpurarauð. Bikar langær. Blómleggir langir.
     
Heimkynni   Garðauppruni. (Frakkland 1900).
     
Jarðvegur   Frjór, rakur, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   Z4
     
Heimildir   1, http://www.vdberk.co.uk
     
Fjölgun   Græðlingar.
     
Notkun/nytjar   Stök tré.
     
Reynsla   Ekki í Lystigarðinum.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is