Páll Ólafsson, Ljóðið Vetrarkveðja
Margt er gott að muna þér
þó mér þú fyndist langur.
Farðu vel, þú færðir mér
fögnuð bæði og angur.

Þó að nísti frostið fast
og fölni grænir hagar
eftir þetta kuldakast
koma betri dagar.
Berberis vulgaris 'Atropurpurea’
Ættkvísl   Berberis
     
Nafn   vulgaris
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'Atropurpurea’
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Rauðblaðabroddur
     
Ætt   Mítursætt (Berberidaceae)
     
Samheiti  
     
Lífsform   Runni
     
Kjörlendi   Sól
     
Blómlitur   Gulur
     
Blómgunartími   Júní
     
Hæð   - 2 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Uppréttur, þyrnóttur runni með purpuralit lauf.
     
Lýsing   Laufin purpuralit og skera sig mjög greinilega frá gulum blómunum. Blómin í drúpandi hálfsveipum.
     
Heimkynni   Yrki.
     
Jarðvegur   Meðalfrjór, meðalrakur, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   Z3
     
Heimildir   1, http://hortuscamden.com
     
Fjölgun   Sumargræðlingar
     
Notkun/nytjar   Stakstæðir, í blönduð beð, í raðir
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til ein planta, sem sáð var til 1982 og gróðursett í beð 1988. Kelur talsvert, blómstrar lítið. Fjórar plöntur sem sáð var til 1988 og gróðursettar í beð 1993, (2 stk.) 1994 og 1996. Nokkuð kal gegnum árin, lítið um blóm.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is