Hulda - Úr ljóðinu Sorg
Þar sem blóm í laufalautum
ljúfu máli saman tala,
sem að ást og angur skilja, ?
blágresi og burknar grannir,
brönugrös og músareyra,
ljósberi og lækjarstjarna,
litlar fjólur, æruprísar,
gullmura og gleym-mér-eigi, ?
vildi ég mega minnast þín.
Caragana tangutica
Ættkvísl   Caragana
     
Nafn   tangutica
     
Höfundur   Maxim.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Bergkergi
     
Ætt   Ertublómaætt (Fabaceae)
     
Samheiti  
     
Lífsform   Runni
     
Kjörlendi   Sól og skjól
     
Blómlitur   Gulur
     
Blómgunartími   Maí-júní
     
Hæð   - 1 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Runni allt að 1 m á hæð, breiðvaxinn, greinar rauðbrúnar, gamlar greinar flagnaðar, ungar hærðar.
     
Lýsing   Smálauf 6 í mesta lagi, breiðoddbaugótt til öfugegglaga, með þyrniodda, dökkgræn ofan, grágræn neðan, 1 sm löng, aðalstrengur þyrnóttur, langær, 1,5-3,5 sm langur. Blómin gul, 3 sm löng, stök. Aldinbelgur mjög hærðir.
     
Heimkynni   Kína
     
Jarðvegur   Grýttur, leirkenndur, sendinn jarðvegur, þurr til meðalrakur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   z3
     
Heimildir   7, http://en.hortipedia.com
     
Fjölgun   Sáning, sumargræðlingar.
     
Notkun/nytjar   Í raðir, í þyrpingar, í blönduð beð.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum eru til tvær plöntur undir þessu nafni, sem var sáð til 1981 og gróðursett í beð 1988. Þrífast vel, kala lítið sem ekkert.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is