Jón Thoroddsen - Barmahlíð

Hlíðin mín fríða
hjalla meður græna
og blágresið blíða
og berjalautu væna,
á þér ástaraugu
ungur réð ég festa,
blómmóðir bezta!

Sá ég sól roða
síð um þína hjalla
og birtu boða
brúnum snemma fjalla.
Skuggi skauzt úr lautu,
skreið und gráa steina,
leitandi leyna.

Blómmóðir bezta,
beztu jarðargæða
gaf þér fjöld flesta
faðir mildur hæða.
Hver mun svo, er sér þig,
sálar þjáður dofa,
að gleymi guð lofa?

Hlíð, þér um haga
hlýr æ blási andi,
döggvi vordaga
dögg þig sífrjóvgandi!
Um þig aldrei næði,
af þér svo að kali,
vetur vindsvali!


Clematis mandshurica
Ættkvísl   Clematis
     
Nafn   mandshurica
     
Höfundur   Rupr.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Hamrabergsóley
     
Ætt   Sóleyjarætt (Ranunculaceae)
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölæringur
     
Kjörlendi   Sól og skjól
     
Blómlitur   Hvítur
     
Blómgunartími   Júlí-ágúst
     
Hæð   1-1,5 m (- 2 m)
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Jarðlægur eða skríðandi fjölæringur
     
Lýsing   Hamrabergsóley er náskyld C. terniflora, með fremur trékenndar greinar og tvífjöðruð lauf. Lauf fjaðurskipt, efri lauf oft þrískipt, smálauf dálítið leðurkennd, lensulaga-egglaga, stutt-odddregin, fleyglaga til hjartalaga við grunninn, dálítið dúnhærð og með áberandi æðastrengi á neðra borði, Blómin smá í fjölblóma blómskipun sem er endastæð eða axlastæð, blómleggir með stoðblöð, stoðblöðin mjó, lítil. Bikarblöð hvít, aflöng, 1,5 sm, mjókka smám saman að grunni, þétt hvítdúnhærð, á jöðrunum á neðra borði. Fræflar, bandlaga, hárlausir. Smáhnetur hliðflatar, hárlausar, stílar allt að 3 sm.
     
Heimkynni   Japan, Kína
     
Jarðvegur   Léttur jarðvegur, frjór, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   7
     
Heimildir   1
     
Fjölgun   Sáning eða sumargræðlingar.
     
Notkun/nytjar   Á veggi, girðingar eða grindur í góðu skjóli og sól.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni, sem sáð ver til 1989 og gróðursett í beð 2006.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is