Ólafur Jóhann Sigurðsson - Á vordegi
Grundin eignast gullinn fífil,
geislafingur hlýir strjúka
lambakóng með lítinn hnýfil,
lambagrasið rauða og mjúka.

Vappar tjaldur, vellir spói,
verpir í broki mýrispýta.
Bráðum kveikir fenjaflói
fífublysið mjallahvíta.

Bráðum mun í morgunstillu
meðan þokan kveður dranga
ljósberi hjá lágri syllu
lyfta kolli til að anga.

Blíða daga, bjartar nætur
bugðast á með tærum hyljum
eftir laut sem litlir fætur
lásu forðum berum iljum.


Clematis tangutica ssp. obtusiuscula
Ættkvísl   Clematis
     
Nafn   tangutica
     
Höfundur   (Maxim.) Korsh.
     
Ssp./var   ssp. obtusiuscula
     
Höfundur undirteg.   (Rehd. & Wils.) Gray Wilson
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Bjarmabergsóley
     
Ætt   Sóleyjarætt (Ranunculaceae)
     
Samheiti  
     
Lífsform   Klifurrunni - vafrunni
     
Kjörlendi   Sól og skjól
     
Blómlitur   Sterkgulur
     
Blómgunartími   Sumar-haust
     
Hæð   3 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Klifurrunni.
     
Lýsing   Ungir sprota meira ullhærðir-dunhærðir. Blaðleggur meira ullhærðir, smálauf smærri, minna tennt en aðaltegundin. Blómin sterkgul, stök, opnast mikið. Blómskipunarleggir ullhærðari. Bikarblöð styttri allt að 3 sm, snubbótt oddbaugótt, stutt-odddregin.
     
Heimkynni   Kína (W Sichuan)
     
Jarðvegur   Léttur jarðvegur, frjór, vel framræstur
     
Sjúkdómar  
     
Harka   4
     
Heimildir   1
     
Fjölgun   Sumargræðlingum, sáningu.
     
Notkun/nytjar   Á veggi eða grindur í góðu skjóli og sól.
     
Reynsla   Er ekki til í Lystigarðinum.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is